Fasteignaleitin

Húsnæðisverð lækkar

06 október 2022
Mynd af Halldór Kári Sigurðarson
Halldór Kári Sigurðarson
Hagfræðingur Húsaskjóls
Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,4% í ágúst en það hafði hækkað samfellt síðustu 32 mánuðina þar á undan. Lækkunin er í takt við væntingar Greiningardeildar Húsaskjóls og skýrist fyrst og fremst af vaxtahækkunum og minna aðgengi að lánsfé.
Heimildir: Þjóðskrá Íslands, HMS og Greiningardeild Húsaskjóls
Eitt skýrasta merki viðsnúnings á íbúðamarkaði undanfarna mánuði hefur einfaldlega verið aukið framboð af eignum til sölu. Um þessar mundir eru á bilinu 1300-1400 eignir til sölu á höfuðborgarsvæðinu sem er tvöfalt meira en fyrir tveimur mánuðum. Það er því ljóst að íbúðir eru að koma mun hraðar inn á markaðinn en þær seljast.
Það er þekkt að þegar samningsstaða kaupenda og seljenda snýst svona hratt getur skapast ákveðin sölutregða. Kaupendur bjóða undir ásettu verði en seljendur sætta sig ekki við tilboðin. Þetta skýrir e.t.v. hraða aukningu í framboði um þessar mundir.
Ofan á þetta bætist að það má gera ráð fyrir töluverðri aukningu í framboði á nýbyggingum á næstu mánuðum.
Íbúðaspá HMS og SI gerir ráð fyrir að rúmlega 400 nýjar íbúðir komi inn á mánuði það sem eftir lifir árs þegar horft er á landið í heild sinni sem er tvöfalt meira en í meðalmánuðinum það sem af er ári.
Heimildir: Samtök iðnaðarins, HMS og Greiningardeild Húsaskjóls

Peningastefnunefnd ákvað í gær að hækka vexti um 25 punkta og standa meginvextir bankans nú í 5,75%. Það sem er áhugaverðast er hins vegar ekki vaxtahækkunin heldur mjúkur tónn nefndarinnar og
ummæli Seðlabankastjóra um að mögulega væri stýrivaxtahækkunarferli Seðlabankans lokið í bili.
Heimildir: Samtök iðnaðarins, HMS og Greiningardeild Húsaskjóls
Horft  fram á við er ljóst að húsnæðisverð mun halda áfram að lækka að nafnvirði á næstu mánuðum. Það skýrist af nokkrum þáttum. Fyrir það fyrsta má nefna að vísitala íbúðaverðs er 3 mánaða hlaupandi meðaltal undirritaðra kaupsamninga. Nýjasta mælingin byggir því á kaupsamningum sem voru undirritaðir í sumar og því ljóst að vaxtaáhrifin eru aðeins komin inn að hluta. Tregða seljenda til að aðlaga sig að breyttum aðstæðum hefur síðan leitt til þess að íbúðaframboð hefur tvöfaldast á tveimur mánuðum. Þannig getur markaðurinn ekki gengið til lengdar og seljendur munu á næstu mánuðum þurfa að sætta sig við nýjan veruleika. Loks má nefna að Samtök iðnaðarins og HMS spá miklu innflæði af nýbyggingum inn á markaðinn á næstu mánuðum.
Þrátt fyrir að steypan sé uppáhalds fjárfesting Íslendinga getur íbúðaverð lækkað líkt og annað eignaverð og það er einmitt það sem er framundan.

Vinsælar eignir

Skoða eignina Suðurhvammur 4
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Suðurhvammur 4
Suðurhvammur 4
220 Hafnarfjörður
267,4 m2
Einbýlishús
825
587 þ.kr./m2
157.000.000 kr.
Skoða eignina Vallengi 15
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Vallengi 15
Vallengi 15
112 Reykjavík
88,7 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 36
3D Sýn
Skoða eignina Drekavellir 36
Drekavellir 36
221 Hafnarfjörður
175,6 m2
Fjölbýlishús
423
654 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Hvammabraut 12
Skoða eignina Hvammabraut 12
Hvammabraut 12
220 Hafnarfjörður
136,3 m2
Fjölbýlishús
615
535 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Álfaheiði 2b
Hleðslustöð
Skoða eignina Álfaheiði 2b
Álfaheiði 2b
200 Kópavogur
66,7 m2
Fjölbýlishús
312
958 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Vaðlatún 14
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Vaðlatún 14
Vaðlatún 14
600 Akureyri
118,5 m2
Raðhús
413
725 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Ferjuvað 9
Skoða eignina Ferjuvað 9
Ferjuvað 9
110 Reykjavík
72,7 m2
Fjölbýlishús
211
385 þ.kr./m2
28.000.000 kr.
Skoða eignina Strandasel 11
Skoða eignina Strandasel 11
Strandasel 11
109 Reykjavík
43,3 m2
Fjölbýlishús
11
1014 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Skoða eignina Miðsalir 3
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Miðsalir 3
Miðsalir 3
201 Kópavogur
182,6 m2
Einbýlishús
624
904 þ.kr./m2
165.000.000 kr.
Skoða eignina Víðimelur 32
Kjallaraíbúð
Skoða eignina Víðimelur 32
Víðimelur 32
107 Reykjavík
55,8 m2
Fjölbýlishús
312
894 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin