Fasteignaleitin

Samningar um aukið framboð á húsnæði

13 september 2022
Mynd af HMS
HMS
Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun
Sameiginlegt átak ríkis og sveitarfélaga um stóraukið framboð íbúða á næstu árum hófst formlega í dag þegar haldinn var upphafsfundur um framkvæmd rammasamnings sem undirritaður var í júlí sl. Rammasamningurinn kveður á um að fjölga íbúðum um 20.000 á fimm árum og 35.000 á tíu árum, þar af verði 30% nýrra íbúða hagkvæmar á viðráðanlegu verði og 5% íbúða félagsleg húsnæðisúrræði.
HMS mun á næstu vikum, fyrir hönd ríkisins, vinna með sveitarfélögum við að meta núverandi húsnæðisáætlanir, greina tækifæri til frekari uppbyggingar og gera samninga um slíkar áætlanir. Samningarnir munu kveða á um fjölda íbúða, íbúðagerð og staðsetningu til að skapa fyrirsjáanleika til næstu ára. Samkvæmt húsnæðisáætlunum fyrir árið 2022 er aðeins gert ráð fyrir um 16.000 nýjum íbúðum á fimm árum. Á sama tíma verður farið yfir áskoranir sem sveitarfélögin standa frammi fyrir vegna aukinnar uppbyggingar og endurmat á íbúðaþörf.
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra: „Nú verða allir að róa í sömu átt og leggja allt kapp á að tryggja aukið framboð íbúða. Jafnvægi á húsnæðismarkaði er nauðsynlegt til þess að skapa húsnæðisöryggi, hagstætt vaxtaumhverfi til lengri tíma og verja efnahag heimilanna. Rammasamningur ríkis og sveitarfélaga sem undirritaður var í sumar var mikilvægur áfangi að ná sameiginlegri sýn um það hvernig megi ná jafnvægi á húsnæðismarkaði og fyrirsjáanleika fyrir stjórnvöld og byggingaraðila um uppbyggingu. Nú er unnið markvisst að því að útfæra samninginn með sveitarfélögum, m.a. til að tryggja nægjanlega fjölda byggingarhæfra lóða, eyða flöskuhálsum í skipulagsferlum og meta hvaða fjármuni ríkið leggur til í húsnæðisstuðning og stofnframlög. Við bíðum nú eftir kostnaðarmati HMS og sveitarfélaga til að geta metið endanlegar tillögur að fjármögnun til verkefnisins úr ríkissjóði. Þetta er viss áskorun á tímum þegar gæta þarf sjónarmiða um aðhald á fjárlögum. Þó er ljóst að hússnæðisskortur hækkar fasteignaverð og vísitölu, sem aftur getur hækkað verðbólgu og hefur þannig bein áhrif á ráðstöfunartekjur fólksins í landinu. Skynsamleg fjárfesting hins opinbera í húsnæðisstuðning er því mikilvæg og tryggir aukið framboð íbúða og dregur úr þenslu á fasteignamarkaði.“

Kostnaðarmat húsnæðisstuðnings í undirbúningi

HMS og Samband íslenskra sveitarfélaga munu í október nk. skila innviðaráðherra kostnaðarmati og tillögum um það hver húsnæðisstuðningur við sveitarfélög þarf að vera til að byggja upp hagkvæmar íbúðir á viðráðanlegu verði í samræmi við markmið rammasamningsins.
Þá er starfshópur um húsnæðisstuðning að störfum með það hlutverk að endurskoða beinan húsnæðisstuðning til einstaklinga. Á grundvelli þeirrar vinnu og á grundvelli tillagna starfshóps um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði, frá maí 2022, er gert ráð  fyrir breytingum og auknum húsnæðisstuðningi ríkisins frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpi til fjárlaga 2023. Þar sem starfshóparnir eru enn að störfum er horft til annarrar umræðu fjárlaga í því samhengi.
Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga „Að útfæra einstaka þætti rammasamningsins er mikil en jákvæð áskorun fyrir ríki og sveitarfélög. Við erum að feta nýja slóð í þessari samvinnu og mikilvægt er að vel til takist. Rammasamningurinn hefur nú þegar skapað væntingar sem við megum ekki bregðast. Fyrir liggur tímasett aðgerðaáætlun með 24 verkefnum og aðgerðum sem við verðum að einhenda okkur í að framkvæma. Með samstilltu átaki geta ríki og sveitarfélög vonandi náð markmiðum samningsins.“

Þriðjungur íbúða verði hagkvæmar á viðráðanlegu verði eða félagsleg húsnæðisúrræði

Samkvæmt rammasamningi er gert ráð fyrir að 30% nýrra íbúða verði hagkvæmar íbúðir á viðráðanlegu verði, sem byggðar er með stofnframlögum frá ríkinu eða með hlutdeildarlánum, samtals um 6.000 íbúðir á næstu fimm árum. Að sama skapi er áætlað að 5% íbúðanna verði félagsleg húsnæðisúrræði á vegum sveitarfélaganna, eða um 1.000 íbúðir á næstu fimm árum. Með þessum aðgerðum er verið að mæta þeim hópi sem hefur átt erfitt með að komast inn á húsnæðismarkaðinn bæði fyrstu kaupendum og tekju- og eignalægri hópum.

Húsnæðisstefna og húsnæðisáætlun í byrjun næsta árs

Að lokinni þessari vinnu og þegar samningar milli HMS og sveitarfélaga um aukna uppbyggingu á hverjum stað liggja fyrir mun HMS í upphafi næsta árs leggja fram og birta heildstæða húsnæðisáætlun fyrir allt landið. Í húsnæðisáætluninni, sem verður stafræn, verður nákvæm áætlun um uppbyggingu í hverju sveitarfélagi fyrir sig og því verður hægt fylgjast með framvindu uppbyggingar nýrra íbúða á vef HMS.
Innviðaráðuneytið vinnur nú að gerð húsnæðisstefnu með aðgerðaáætlun, sem verður sú fyrsta sem gerð hefur verið í málaflokknum. Grænbók verður kynnt í haust og þingsályktunartillaga um húsnæðisstefnu kynnt í upphafi árs 2023.

Helstu áfangar

30.nóvember - Húsnæðis- og skipulagsmál færð til innviðaráðuneytisins í tengslum við ríkisstjórnarskipti í því skyni að tryggja betri samhæfingu með sveitarfélögum og aukinn stöðugleika á húsnæðismarkaði.
17.febrúar – Starfshópur um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði skipaður – Frétt
19.maí – Starfshópur um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði kynnti tillögur – Frétt
6.júlí – Starfshópar skipaðir um húsnæðisstuðning og húsaleigulög – Frétt
12.júlí – Rammasamningur ríkis og sveitarfélaga um húsnæðismál undirritað – Frétt
Lok september – Starfshópar um húsnæðisstuðning og húsaleigulög skila niðurstöðum.
Október – HMS og Samband íslenskra sveitarfélaga skila kostnaðarmati og tillögum um aukinn húsnæðisstuðning sem þarf til uppbyggingar hagkvæmra íbúða á viðráðanlegu verði í samræmi við markmið rammasamningsins.
Áramótin 2022-2023 – HMS hefur tekið saman allar húsnæðisáætlanir sveitarfélaga í eina heildstæða og stafræna húsnæðisáætlun fyrir allt landið – eftir að sveitarfélög og HMS hafa gert samninga um einstakar húsnæðisáætlanir.
Vorþing 2023 – Húsnæðisstefna stjórnvalda með aðgerðaáætlun kynnt og lögð fram á Alþingi sem þingsályktunartillaga.

Vinsælar eignir

Skoða eignina Suðurhvammur 4
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Suðurhvammur 4
Suðurhvammur 4
220 Hafnarfjörður
267,4 m2
Einbýlishús
825
587 þ.kr./m2
157.000.000 kr.
Skoða eignina Vallengi 15
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Vallengi 15
Vallengi 15
112 Reykjavík
88,7 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 36
3D Sýn
Skoða eignina Drekavellir 36
Drekavellir 36
221 Hafnarfjörður
175,6 m2
Fjölbýlishús
423
654 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Hvammabraut 12
Skoða eignina Hvammabraut 12
Hvammabraut 12
220 Hafnarfjörður
136,3 m2
Fjölbýlishús
615
535 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Álfaheiði 2b
Hleðslustöð
Skoða eignina Álfaheiði 2b
Álfaheiði 2b
200 Kópavogur
66,7 m2
Fjölbýlishús
312
958 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Vaðlatún 14
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Vaðlatún 14
Vaðlatún 14
600 Akureyri
118,5 m2
Raðhús
413
725 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Ferjuvað 9
Skoða eignina Ferjuvað 9
Ferjuvað 9
110 Reykjavík
72,7 m2
Fjölbýlishús
211
385 þ.kr./m2
28.000.000 kr.
Skoða eignina Strandasel 11
Skoða eignina Strandasel 11
Strandasel 11
109 Reykjavík
43,3 m2
Fjölbýlishús
11
1014 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Skoða eignina Miðsalir 3
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Miðsalir 3
Miðsalir 3
201 Kópavogur
182,6 m2
Einbýlishús
624
904 þ.kr./m2
165.000.000 kr.
Skoða eignina Víðimelur 32
Kjallaraíbúð
Skoða eignina Víðimelur 32
Víðimelur 32
107 Reykjavík
55,8 m2
Fjölbýlishús
312
894 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin