Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna, Ásvallagötu 55, íbúð 0201, fnr. 200-2507Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 57 fm. Íbúðarhlutinn er skráður 44,1 fm og svo tvær geymslur i kjallara sem eru skráðar 4,1 og 8,8 fm. Skráð byggingarár hússins er 1935 Húsið er fjórar hæðir og kjallari og er íbúðin á efri hæð hússins. Sjá má skipulag íbúðar á teikningu sem er vistuð þar sem ljósmyndir eru af eigninni og einnig er skipulag í kjallara vistað þar. Einungis fjórar íbúðir eru í stigaganginum (tvær á hvorri hæð). Frábær fyrstu kaup. Húsið er steinsteypt og mynda húsin hring utan um skemmtilegan skjólgóðan gróinn garð með leiktækjum, bekkjum, borðum og matjurtabeðum. Frábær staðsetning þar sem göngufæri er í sundlaug, háskólasvæðið, verslanir, kaffihús og leik- og grunnskóla. Einnig er afar stutt í útivistarsvæði við sjávarsíðuna og í miðbæinn þar sem allt er til alls. Reykjavíkurborg sér um að halda garðinum í portinu við og er garðurinn öllum opinn á daginn, en á kvöldin er hliði í undirgöngum læst og garðurinn er þá eingöngu fyrir íbúa í húsinu. Húsalengjan er teiknuð af Guðjóni Samúelssyni arkitekt og eru sögufrægir verkamannabústaðir. Húsalengjan myndar hring utan um þennan garð og stendur við Ásvallagötu, Bræðraborgarstíg, Hringbraut og Hofsvallagötu.FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.
3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3DNánari lýsing:Aðkoma: Snyrtileg sameign sem liggur upp að íbúðinni á 2. hæð.
Stofa: Er björt með parketi á gólfi. Gluggi snýr inn í garðinn.
Svefnherbergi: Parket á gólfi. Rúmgóður fataskápur.
Baðherbergi: Er allt nýlega endurnýjað. flísalagt í hólf og gólf, góð vaskinnrétting, sturta, upphengt salerni og stór handklæðaofn. Gluggi er í rýminu.
Geymslur: Tvær geymslur fylgja íbúðinni og eru í kjallara. Sú stærri er skráð 8,8 fm og minni geymslan er 4,1 fm.
Ásvallagata 55 er virkilega falleg íbúð í húsi sem hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Öflugt húsfélag er starfandi í húsinu. Tilvalin eign fyrir fyrstu kaupendur. Samantekt á framkvæmdum í gegnum árin frá húsfélaginu:2000-2001 Var heildarendurnýjun á þaki. Skipt var um járn á þaki og það málað, skipt um pappa, rennur og niðurfallsrör og einangrað með steinull.
2000-2001 Endurnýjun loftneta og loftnetslagna, jarðbinding.
2001-2002 Endurnýjun hluta kjallarahurða og glugga. Endurnýjun glugga í íbúðum og sameignum.Endurnýjun og viðhald glugga í íbúðum og sameignum.
2006 Málun glugga og hurða, viðhald og endurnýjun glugga.
2007 Viðhald og endurnýjun steyptra kjallaraglugga
2008 Viðhald glugga og útidyrahurða.
2009 Viðhald glugga og útidyrahurða.
2010 Málun þaka, niðurfallsröra og þakrenna
2011 Málun botnstykkja eða heilmálun glugga eftir atvikum og kjallarahurða, lagning snjóbræðslu. Viðhald og endurnýjun hluta sameiginlegar klóakslagnar.
2011 Hannaðar betrumbætur, með tilliti til eldvarna og hljóðeinangrunar á upprunalegu hurðirnar sem skilja að íbúðir og stigaganga.
2012 Endurgerð fyrrum búðarglugga á Bræðraborgarstíg og upprunalegra útidyrahurða.
2012 Endurreisn garðveggja við Hringbraut.
2013 Hönnun garðhliða.
2014 Uppsetning húsnúmera og götuskilta, uppsetning útiljósa, unnið að úttekt á húsunum.
2015 Vinnu við úttekt húsanna haldið áfram, smíði og uppsetning garðhliða, viðhald glugga.
2016 Áframhaldandi viðhald glugga og hurða, viðhald og endurnýjun á þakrennum og niðurfallsrörum.
2017 Áframhaldandi viðhald og málun glugga og hurða, viðhald og endurnýjun á þakrennum og niðurfallsrörum.
2018-2019 Áframhaldandi viðhald og málun glugga og hurða, viðhald og endurnýjun á þakrennum og niðurfallsrörum.
2019-2020 Áframhaldandi viðhald og málun glugga og hurða, viðhald og endurnýjun á þakrennum og niðurfallsrörum. Viðhald á styttunni af Héðni Valdimarssyni. Endurnýjun á trjágróðri í görðum.
2021 Myndun klóakslagna, viðhald glugga, viðhald, endurnýjun og málun á þakrennum og niðurfallsrörum, loftnet fjarlægð af skorsteinum. Slegið upp fyrir nýjum stöpli undir styttuna af Héðni Valdimarssyni.
2022 Viðhald glugga, viðhald á þakrennum, haldið áfram plöntun og endurnýjun á trjám í garða.
2023 Málun á þökum, viðhald og blettun á niðurfallsrörum og þakrennum, viðgerðir á kjallaratröppum, stöpull undir styttuna af Héðni Valdimarssyni flísalagður og styttunni komið fyrir.
2024 Viðhald á gluggum, þakrennum og þakniðurföllum, lítilsháttar múrviðgerðir, plöntun trjáa.
Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s:
861-7507 eða á
daddi@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.