Fasteignaleitin
Skráð 4. ágúst 2026

Brekkuhjalli 12

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
207.7 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
182.900.000 kr.
Fermetraverð
880.597 kr./m2
Brunabótamat
119.050.000 kr.
Byggt 1999
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22299771
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Einstakt einbýlishús með fallegu útsýni í suðurhlíðum Kópavogs. Húsið er byggð árið 1999 og eru á tveimur hæðum með bílskúr og upphitað bílastæði fyrir 4 bíla. 4 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Gróinn og skjólsæll, afgirtur suðurgarður með timburverönd, heitum og köldum potti og sauna klefa.

Eignin er skráð 207,7 fm skv HMS og er bílskúr þar af 24,6 fm. 

Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun veitir Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is

Eignin telur: stofu, eldhús, borðstofu, sjónvarpshol, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús, bílskúr, afgirt lóð og pallur.

Nánari lýsing efri hæðar (106,5 fm):
Forstofa með fatahengi og granítflísar á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með stórum gluggum og fallegu útsýni, arinn með flísum í kring og útgengt á suðursvalir. 
Eldhús er með góðri innréttingu með granít á borðum, bakaraofn í vinnuhæð og span helluborð, tengi fyrir uppþvottavél og stæði fyrir tvöfaldan ísskáp. Opið inn í stofu/borðstofu úr eldhúsi.
Herbergi I með fataskáp.
Gestasalerni er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni og handlaug.

Opinn, fallegur stigi á milli hæða.

Nánari lýsing neðri hæðar (76,6fm):
Herbergi II
 (hjónasvíta) með fataskápum, gangur á milli svefnherbergis og baðherbergis en þar er fataherbergi, fataskápar, kommóða og snyrtiaðstaða með lítilli handlaug.
Herbergi III með fataskáp.
Herbergi IV með fataskáp.
Sjónvarpshol/hol er rúmgott og býður upp á möguleika, hægt væri að bæta við herbergi, útgengt á verönd og þaðan út í garð.
Baðherbergi er mjög rúmgott með innréttingu með góðu skápaplássi, sturta, hornbaðkar, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi.

Bílskúr (24,6 fm) er með vatn og rafmagn, geymsluloft yfir hluta bílskúr, innkeyrslu-og gönguhurð. Hellulagt upphitað bílaplan fyrir 4 bíla, auk þess er sameiginlegt bílastæði fyrir íbúa götunnar.
Gólfefni eru gegnheilt parket, granítflísar og flísar.

Garðurinn er gróinn og afgirtur með timbuverönd á bakvið húsið, heitur og kaldur pottur ásamt skúr með sauna. Gengið er í garðinn niður tröppur framan við hús og einnig úr holi neðri hæðar. Sameiginleg geymsla á milli húsa sem gengið er í fyrir neðan hús.

Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun veitir Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (62)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kvistavellir 18
Heitur pottur
Skoða eignina Kvistavellir 18
Kvistavellir 18
221 Hafnarfjörður
202.7 m2
Raðhús
524
656 þ.kr./m2
132.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurvellir 3
Bílskúr
Skoða eignina Suðurvellir 3
Suðurvellir 3
230 Reykjanesbær
221.8 m2
Einbýlishús
936
419 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Furuvellir 20
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Furuvellir 20
Furuvellir 20
221 Hafnarfjörður
187.3 m2
Einbýlishús
413
747 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Akurgerði 31
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Akurgerði 31
Akurgerði 31
108 Reykjavík
209.9 m2
Parhús
624
738 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin