Fasteignaleitin
Skráð 18. júlí 2026

Kolagata 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
124.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
148.900.000 kr.
Fermetraverð
1.195.024 kr./m2
Fasteignamat
124.650.000 kr.
Brunabótamat
94.350.000 kr.
Mynd af Magnús Már Lúðvíksson
Magnús Már Lúðvíksson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2018
5. hæð af 6
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2363628
Landnúmer
209357
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
6
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
08
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Magnús Már Lúðvíksson og Gunnar sverrir Harðarson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna:
Einstaklega björt og vönduð 124,6 m² íbúð á Hafnartorgi með stórum gluggum í tvær áttir, suðursvölum, tveimur baðherbergjum og rúmgóðri stofu. Eignin er innréttuð með sérvöldum Noblessa-innréttingum, Siemens-tækjum, Vola-blöndunartækjum og GIRA-snjallljósakerfi. Aukin lofthæð, einstaklega fallegt útsýni og frábær staðsetning í hjarta Reykjavíkur.

// Íbúðin er frábærlega staðsett í nálægð við alla menningu og verslun og þjónustu sem Miðborgin hefur upp á að bjóða.
// Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks.
// Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki. 

- 124,6 m² og tvö svefnherbergi
- Tvö fullbúin baðherbergi
- Suðursvalir og gluggar í tvær áttir
- Aukin lofthæð og extra háar innihurðir
- Beinn aðgangur að bílakjallara


Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is

Eignin skiptist í: Anddyri, 2 svefnherbergi, rúmgóða stofu/borðstofu, suðursvalir, eldhús með eyju, 2 baðherbergi og þvottaherbergi. Geymsla á jarðhæð.

Forstofa: Með parketi á gólfi og skápum. Inngangshurð er svargrá með viðaráferð frá Huet.
Eldhús: Með parketi á gólfi og glæsilegri innréttingu frá Noblessa með eyju. Borðplata er úr Meganite Carrara efni og með eldhúsvask sem felldur er í borðplötuna úr sama efni. Öll eldhústæki eru af vönduðustu gerð frá Siemens. Lýsing er undir efri skápum og ljúflokun á skúffum og skápum. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél og vínkælir fylgir. Auk þess innfelld kaffivél og innbyggður gufugleypir í eldhúseyju.
Stofa: Með parketi á gólfi og stórum gluggum í tvær áttir. Stofa er opin við eldhús og rúmar setustofu og borðstofu. Fallegt útsýni úr stofu.
Baðherbergi: Er afar glæsilegt með flísum frá Iris stone á bæði gólfi og veggjum. Falleg innrétting frá Noblessa. Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni. Upphengt salerni og falleg flísalögð sturta með innbyggðum blöndunartækjum frá Vola.
Hjónaherbergi: Er stórt með parketi á gólfi og miklu skápaplássi og baðherbergi 2 inn af hjónaherbergi.
Baðherbergi 2: Virkilega glæsilegt með flísum frá Iris stone á bæði gólfi og veggjum. Falleg innrétting frá Noblessa. Meganite borðplata með innbyggðum vaski úr sama efni. Upphengt salerni og falleg flísalögð sturta með innbyggðum blöndunartækjum frá Vola.
Svefnherbergi: Með parketi á gólfi.
Þvottahús: Með flísum á gólfi, innréttingu og vaski. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 6,4 fermetrar að stærð.

Íbúðin er hið glæsilegasta eins og fyrr greinir með fallegum innréttingum frá Noblessa og borðplötum úr vönduðu Meganite Carrara efni. Öll eldhústæki eru af vandaðri gerð frá Siemens og vínkæli í eldhúseyju. Aukin lofthæð og allar innihurðar extra háar og framleiddar af HBH smíðaverkstæði. Myndavéladyrasími og blöndunartæki af vönduðustu gerð frá Vola (Tengi). Rafkerfi útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. E-Net ljósastýrikerfi frá GIRA er í öllum íbúðum sem býður upp á notkun smáforrits (app) í snjalltækjum til að stýra ljósum. Hita og loftræstikerfi pípulagnakerfi hússins (innan íbúða) er leitt í gegnum lóðrétta lagnastokka. Ofnalagnir eru innsteyptar rör-í-rör og ofnar eru með vönduðum ofnlokum frá Danfoss

Lyfta er í húsinu og í beinum tengslum við bygginguna er rúmgóður bílakjallari sem veitir þægilegan aðgang fyrir íbúa og gesti.

Einstakt hús í hjarta borgarinnar.
Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Lúxus fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt um kring.

Bílakjallari.
Í bílakjallaranum, sem er opinn allan sólarhringinn alla daga ársins. Mikið verður lagt upp úr frágangi hvað varðar lýsingu, merkingar og að auki verður fullkomið leiðsagnarkerfi til að auðvelda að finna stæði eða fá leiðbeiningar um hvar bílar eru staðsettir og hvernig eigi að komast að og frá þeim stað sem eigandi bíls er staddur í byggingunum. Íbúum hússins gefst kostur á að gera langtímasamning um leigu á bílastæði.

Byggingaraðili.
Frá árinu 1998 hefur ÞG Verk byggt fjölda heimila fyrir ánægðar fjölskyldur. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð fyrirtækisins.  Meginmarkmið ÞG Íbúða ehf  er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við viðskiptavini.

Hönnuðir.
Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar. Stofan sem var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun.
Guðbjörg Magnúsdóttir, sem er meðal þekktustu innanhússhönnuða landsins, hannaði og sá um efnisval inn í allar íbúðir á 2-5 hæð húsanna.

Frekari upplýsingar veita löggiltir fasteignasalar
Magnús Már Lúðvíksson í síma 699-2010 eða maggi@remax.is
Gunnar sverrir Harðarson í síma 8622001 eða gunnar@remax.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/02/2024101.850.000 kr.131.000.000 kr.124.6 m21.051.364 kr.
09/12/202070.750.000 kr.100.000.000 kr.124.6 m2802.568 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Barmahlíð 49
Bílskúr
Opið hús:23. júlí kl 19:00-19:30
Skoða eignina Barmahlíð 49
Barmahlíð 49
105 Reykjavík
137.5 m2
Hæð
413
800 þ.kr./m2
110.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
116.4 m2
Fjölbýlishús
413
1022 þ.kr./m2
119.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
116.5 m2
Fjölbýlishús
423
1064 þ.kr./m2
124.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
123.2 m2
Fjölbýlishús
322
1258 þ.kr./m2
155.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin