VARMAGERÐI – UPPBYGGINGARTÆKIFÆRI Í FERÐAÞJÓNUSTU VIÐ LAUGARÁS LAGOONTil sölu er Varmagerði, vel staðsett eign á eftirsóttu ferðamannasvæði í Bláskógabyggð, aðeins um 400 metrum frá Laugarás Lagoon.
Frá eigninni er fallegt útsýni yfir jarðhitasvæðið og heitan læk sem setur sterkan svip á umhverfið.
Jörðin er einstaklega falleg um 1.5 hektarar að stærð með miklum gróðri og henni fylgir aðgangur að heitu vatni.
Á lóðinni er einbýlishús með gistileyfi fyrir 8 manns auk minna gistihúss með gistirými fyrir 4 gesti í tveimur aðskildum herbergjum, hvort með sérinngangi.
Einnig er starfmannahús (notað sem íbúðahús í dag) sem auðveldlega hægt að gera að útleigueiningum sem gæti hýst ca 10-12 manns.
Miklir uppbyggingarmöguleikar eru fyrir hendi.Fyrir liggur vilyrði sveitarfélagsins um gististarfsemi fyrir allt að 30 manns auk þess sem leyfi er til staðar fyrir byggingu 100 m² húsi/gistihúsi.
Eignin býður jafnframt upp á áhugaverða möguleika til frekari uppbyggingar, með fyrirvara um tilskilin leyfi og samþykktir.
Staðsetningin er einstaklega ákjósanleg fyrir ferðaþjónustu, í nálægð við Laugarás Lagoon, Skálholt, Geysi, Gullfoss, Laugarvatn og fjölmargar aðrar náttúruperlur Suðurlands.
Varmagerði býður upp á áhugavert fjárfestingartækifæri þar sem núverandi gistirekstur, fyrirliggjandi byggingarheimildir og möguleikar á heimild fyrir frekari uppbyggingu,
eru frábær fyrir áframhaldandi uppbyggingu ferðaþjónustu.
Einbýlishúsið er 129,8fm á einni hæð byggt 1971 en að mestu endurnýjað innan sem utan síðustu árin. Húsið er með 4 svefnherbergjum, stofu,
eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi. Frá stofu er gengið útá pall með heitum potti og snýr í suður.
Sólskáli byggður 1977 er um 88fm er í garði einbýlishúss, í dag notaður sem yogasalur.
Stafsmannahúsið er um 200fm 3 herberja íbúð á tveimur hæðum, auk 80fm bílskúrs/geymslu með mikilli lofthæð, byggt 1974. Auk tveggja svefnherbergja er 1,5 baðherbergi, eldhús, borðkrókur, stofa, skrifstofa og svefn krókur undir súð. Búið er að laga húsið að hluta til en viðgerðir standa yfir á íbúðahluta þess. Skipt um glugga og klætt að utan.
Stálgrindarhús er 263,4fm að stærð byggt 1972 og hefur verið nýtt sem studio fyrir listamenn og verkstæði. Auk þess er samkomurými í hluta með tveimur salernum, eldhús aðstöðu, borðsal. Stórt bílastæði við húsið.
Frábært tækifæri í einstöku umhverfi.Nánari upplýsingar veitir:Davíð Ólafsson lfs og löggiltur leigumiðlari,
síma 7666633,
tölvupóstur david@ergon.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ergon fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.