Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Helluvað 13, íbúð 408, 110 Reykjavík:Um er að ræða fallega og rúmgóða 4 herbergja endaíbúð á 4 hæð í góðu lyftuhúsi. Svalir til suðurs með glæsilegu útsýni til suðurs að Bláfjöllum yfir Heiðmörk og Elliðavatn.. Íbúðinni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Birt stærð eignar er 111,3 fm, þar af er íbúðahluti 100,2 fm og geymsla 11,1 fm.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXÍbúðin skiptist í forstofu, í opnu rými er eldhús og borðstofu / stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, gangur, þvottahús, geymslu og stæði í bílageymslu.
Nánari lýsing:Anddyri: Með fataskáp, skóskáp og spegli.
Eldhús: Opið inn í stofu, falleg svört innrétting með granít borðplötu, flísar milli skápa, uppþvottavél sem fylgir með, bakaraofn, helluborð, háfur, parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð, útgengi út á stórar suður svalir (8,8 fm), parket á gólfi.
Fallegt útsýni.
Hjónaherbergi: Rúmgott, svartir fataskápar, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Með svörtum fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Með svörtum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað. Með góðri innréttingu, speglaskápur, upphengt salerni, sturta með innbyggðum blöndunartækjum, flísalagt í hólf og gólf.
Gangur: Parket á gólfi.
Þvottahús: Tengi fyrir vask, þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi.
Geymsla: Í sameign er 11,1 fm geymsla (merkt 0035).
Bílageymsla: Eigninni fylgir stæði í bílageymslu (merkt B03). Lagt hefur verið fyrir rafhleðslustöð (leiga).
Sameign: Snyrtileg sameign með sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Hús og lóð: Helluvað 7-21. Húsið er fimm hæða fjölbýli með lyftu og lokaðri bílageymslu og er byggt árið 2007. Í Helluvaði 13 eru átta íbúðir, tvær íbúðir á hæð. Eitt húsfélag er starfandi fyrir Helluvað 13-21. Sameiginleg 7.327 fm gróin lóð.
Innréttingar / ljós: Allar innréttingar eru filmaðar svartar að innan og utan (ekki innrétting á baðherbergi). Öll ljós fylgja með.
Staðsetning: Smellið hér. Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftirfarandi:* Baðherbergi hefur verið endurnýjað.
* Parket slípað og litað.
* Allar innréttingar eru filmaðar svartar að utan sem innan (ekki baðherbergisinnrétting).
Rúmgóð og falleg eign á góðum stað í Norðlingaholti. Stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóli og leikskóli í göngufæri. Frábært útivistarsvæði í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala, í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.