Fasteignaleitin
Skráð 21. apríl 2026

Áshamar 42

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
110.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.500.000 kr.
Fermetraverð
745.931 kr./m2
Fasteignamat
78.150.000 kr.
Brunabótamat
70.550.000 kr.
Mynd af Guðmundur Hallgrímsson
Guðmundur Hallgrímsson
Löggiltur fasteigna og skipasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2526335
Landnúmer
231975
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
Upprunalegt.
Raflagnir
Upprunalegt.
Frárennslislagnir
Upprunalegt.
Gluggar / Gler
Upprunalegt.
Þak
Upprunalegt.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
LIND Fasteignasala og Guðmundur Hallgrímsson, löggiltur fasteignasali, kynna Áshamar 42 - íbúð 105,
Glæsileg 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð í nýju, Svansvottuðu lyftuhúsi á frábærum stað í Hamraneshverfi í Hafnarfirði. Vönduð og vel skipulögð eign, fallegu útsýni og suðvestursvölum.
Íbúðin er laus strax og afhendist fullbúin með gólfefnum, öllum innbyggðum heimilistækjum og ljósakösturum sem eru til staðar.
Íbúðin skiptist í forstofu, gang, eldhús ásamt stofu og borðstofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sér þvottaherbergi innan íbúðar, auk sérgeymslu og sameiginlegrar hjólageymslu í kjallara.
Möguleiki er að kaupa eða leigja bílastæði í bílageymslu. Leyfi er fyrir dýrahaldi.
Birt stærð samkvæmt fasteignaskrá HMS er 110,6 m², þar af 9,2 m² sérgeymsla í kjallara.
Ath að myndir eru af annari íbúð í húsinu með sama skipulagi.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Hallgrímsson í síma: 898-5115 / GUDMUNDUR@FASTLIND.IS
Andri Freyr Halldórsson í síma 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS


Lýsing:
Forstofa: Opin með harðparketi á gólfi og góðum forstofuskápum.
Gangur: Tengir saman aðrar vistverur íbúðarinnar.
Alrými: (eldhús, stofa og borðstofa) Opið, bjart og rúmgott rými með stórum gluggum á tvo vegu.
Eldhús: Falleg innrétting frá Parka með vönduðum AEG tækjum, innfelldum tvöföldum ísskáp og uppþvottavél. Gott vinnupláss á eyju með helluborði og háf. Harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt með harðparketi og útgengi á suðvestursvalir gengið er af svölum á sérafnotareit og út í garð.
Hjónaherbergi: Rúmgott með gluggum á tvo vegu, góðum fataskápum og harðparketi.
Svefnherbergi I: Rúmgott og bjart með harðparketi.
Svefnherbergi II: Bjart með fataskáp og harðparketi.
Baðherbergi: Flísalagt með fallegri innréttingu, speglaskáp, upphengdu salerni og inngengri sturtu.
Þvottahús: Flísalagt með vinnuborði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Sérgeymsla: Íbúðin á sérgeymslu í kjallara hússins.
Húsið og lóðin:
Áshamar 42 er fimm hæða steinsteypt og álklætt fjölbýlishús með kjallara. Í stigaganginum eru 28 íbúðir og í kjallara eru sérgeymslur ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Húsið er hluti af klasabyggingu við Áshamar 42–48 þar sem sameiginlegur og snyrtilegur garður tengir húsin saman.
Aðkoma er góð, gangstéttar eru hellulagðar og snjóbræðsla er í gangstígum framan við hús samkvæmt teikningum. Sameiginleg bílastæði eru á lóð og möguleiki er á leigu á stæði í bílageymslu.
Svansvottun: Byggingarnar að Áshamri 42–48 eru Svansvottaðar og uppfylla ströngustu umhverfiskröfur Norðurlandanna. Hönnun miðar að lágmarks orkunotkun, betri loftræstingu og hámarksnýtingu dagsbirtu. Allt byggingarefni og verkferlar lúta ströngu eftirliti. Byggingaraðili hússins er Verkland, reynslumikið og traust byggingarfyrirtæki.
Hamraneshverfi:
Hamranes er vel staðsett og fjölskylduvænt hverfi í mikilli uppbyggingu með skóla, leikskóla og falleg útivistarsvæði í næsta nágrenni. Í hverfinu eru tveir grunnskólar og þrír leikskólar ásamt góðri aðstöðu til íþrótta- og tómstundaiðkunar. Gert er ráð fyrir frekari uppbyggingu með nýjum skóla og heilsugæslu í framtíðinni.
Einstakt tækifæri til að eignast vandaða íbúð á frábærum stað í Hafnarfirði!

Staðsetning og nærumhverfi
Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í mikilli nálægð við óspillta náttúru og falleg útivistarsvæði. Stutt er í helstu þjónustu og verslanir. Leik- og grunnskólar eru í göngufæri auk þess sem íþróttamiðstöð Hauka og Ásvallalaug eru í næsta nágrenni. Svæðið er umlukið fallegri náttúru með fjölbreyttum göngu- og hjólaleiðum, og stutt er í vinsæl útivistarsvæði á borð við Hvaleyrarvatn, Ásfjall og Heiðmörk.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Hallgrímsson í síma: 898-5115 / GUDMUNDUR@FASTLIND.IS
Andri Freyr Halldórsson í síma 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS


-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900,
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/11/202432.150.000 kr.76.000.000 kr.110.6 m2687.160 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mýrargata 35
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Mýrargata 35
Mýrargata 35
101 Reykjavík
73.6 m2
Fjölbýlishús
312
1425 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Brekkugata 1
Brekkugata 1 Forsiða  .jpg
Skoða eignina Brekkugata 1
Brekkugata 1
210 Garðabær
112.3 m2
Fjölbýlishús
412
836 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Lynggata 2
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Lynggata 2
Lynggata 2
210 Garðabær
100.7 m2
Fjölbýlishús
312
873 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Laugateigur 17
Skoða eignina Laugateigur 17
Laugateigur 17
105 Reykjavík
91.6 m2
Fjölbýlishús
3
796 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin