Nýtt í sölu - Valshlíð 12 Reykjavík - Glæsileg 2ja. herb. íbúð með vönduðum innréttingum frá JKE design og Miele eldhústækjum, aukinni lofthæð (um 280cm), sérstæði í bílakjallara og svölum til suðurs inn í fallegan bakgarð hússins.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega glæsilega og vel skipulagða 77,0 fermetra 2ja herbergja íbúð á 2. hæð (220) í nýlegu lyftuhúsi við Valshlíð 12 í Reykjavík. Vandaðar innréttingar frá JKE design með undirfelldum vaski og quartzborðplötum frá Granítsmiðjunni. Eldhústæki eru vönduð af gerðinni Miele (bakaraofn, spansuðu helluborð, innbyggður kæliskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél). Blöndunartæki eru frá Tengi og lýsing er hönnuð af Lúmex. Stórar svalir til suðurs sem snúa inn í fallegan skjólgóðan bakgarð. Stofa og eldhús mynda eitt rúmgott alrými með gólfsíðum gluggum til suðurs. Sérgeymsla í kjallara er rúmgóð (7,9 fermetrar að stærð). Þvottaaðstaða er inn af rúmgóðu baðherbergi.
Öll sameign er til fyrirmyndar og afar snyrtileg. Myndavéladyrasími er í húsinu. Flísar á sameiginlegu anddyri og teppi á stigapöllum. Lóðin er snyrtileg með hellulagðri stétt við hús.
Frábær staðsetning í næsta nágrenni við alla verslun, þjónustu og veitingastaði. Stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir við sjóinn, Öskjuhlíðina og Nauthólsvíkina. Íþróttasvæði Vals og Vesturbæjarsundlaug/Sundhöllin í næsta nágrenni. Stutt í alla menningu og mannlíf sem miðbærinn og nágrenni hafa upp á að bjóða.
Hér er um að ræða einstaka eign á frábærum stað í þessu skemmtilega hverfi.
Nánari lýsing: Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum sem ná upp í loft. Stofa: Er stór og með harðparketi á gólfi. Stofa er opin við eldhús og rúmar mjög vel setustofu og borðstofu. Gluggar eru gólfsíðir til suðurs og er útgengi á svalir til suðurs frá stofu. Svalir: Snúa til suðurs inn í fallegan skjólgóðan bakgarð. Eldhús: Með harðparketi á gólfi. Falleg eldhúsinnrétting frá JKE design sem nær upp í loft. Miele bakaraofn, Miele spansuðuhelluborð, innbyggð Miele uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. Eldhús er opið við stofu og eru gluggar til suðurs. Lýsing undir efri skápum og fallegur quartz-steinn á borðum frá Granítsmiðjunni. Svefnherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi og gólfsíðum gluggum til suðurs. Góðir skápar sem ná upp í loft. Baðherbergi: Er rúmgott með flísum á gólfum og veggjum. Flísalögð sturta með gleri og handklæðaofn. Falleg innrétting við vask með steini á borðum og upphengt salerni. Innfelld lýsing í loftum og útloftun. Gott rými fyrir þvottavél og þurrkara inn af baðherbergi.
Bílastæði: Er sérmerkt í bílakjallara. Lyfta gengur beint niður í bílakjallara. Búið er að setja upp rafhleðslukerfi í bílakjallara.
Sérgeymsla: Er staðsett í kjallara sem er 7,9 fermetrar að stærð. Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett í sameign hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
21/04/2021
5.910.000 kr.
54.900.000 kr.
77 m2
712.987 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.