Fasteignaleitin
Opið hús:01. júní kl 17:00-17:30
Skráð 26. maí 2026

Fagurhóll 14

RaðhúsSuðurnes/Sandgerði-245
78.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
698.473 kr./m2
Fasteignamat
51.000.000 kr.
Brunabótamat
44.000.000 kr.
Mynd af Elín Frímannsdóttir
Elín Frímannsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2332811
Landnúmer
208418
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunlegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sólpallur til suðvesturs
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Þarf að flísaleggja veggi á baðherbergi. Búið að kvoða þriggja laga rakavörn í undirbúningi fyrir þá vinnu og glæný handlaug inn á baðherbergi.
Parketbút vantar við hurð út á pall.
Gluggakistu vantar við glugga í þvottahúsi.
Festa þarf lista við baðherbergi.
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu bjart og vel skipulagða íbúð í endaraðhúsi í Sandgerði.
Þessi fallega 78,6 m² íbúð er á frábærum stað í rólegri botnlangagötu í Sandgerði, með opið svæði vestan megin og skóla nærri við. Íbúðin er vel skipulögð og nýtir vel hvern fermetra.


Nánari upplýsingar veitir Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.

** Allar innréttingar í húsinu eru sérsmíðaðar og gefa húsinu sérstakt og vandað yfirbragð.
** Að utan er húsið fullbúið, plan er malbikað, stétt hellulögð og gras á suður- og vesturhlið.
** Að baki er góð lóð sem snýr að móa og grænu belti. 


Komið er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi og sérsmíðuðum fataskáp, þaðan er gengið inní þvottahús. Úr anddyrinu opnast hol með harðparketi, sem leiðir inn í bjarta stofu þar sem borðstofa og eldhús eru í einu rými. Í eldhúsinu er dökk og rúmgóð sérsmíðuð innrétting með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. Útgengt út á sólríka verönd sem snýr í suðvestur.
Bæði svefnherbergin eru rúmgóð og með harðparketi á gólfi. Í hjónaherberginu er stór sérsmíðaður fataskápur. Baðherbergið er með  flísalagt gólf og vegg að hluta, sérsmíðaðar innréttingar, upphengt salerni og baðkari með sturtu.
Þvottahúsið er með lökkuðu gólfi og góðri innréttingu.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/07/202027.750.000 kr.29.500.000 kr.78.6 m2375.318 kr.
19/03/201810.700.000 kr.20.600.000 kr.78.6 m2262.086 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þórunnarstræti 106
Þórunnarstræti 106
600 Akureyri
90.5 m2
Fjölbýlishús
312
602 þ.kr./m2
54.500.000 kr.
Skoða eignina Þórunnarstræti 106
Þórunnarstræti 106
600 Akureyri
85.3 m2
Fjölbýlishús
122
632 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Rjúpufell 36
Bílskúr
Skoða eignina Rjúpufell 36
Rjúpufell 36
111 Reykjavík
295.5 m2
Raðhús
925
392 þ.kr./m2
115.900.000 kr.
Skoða eignina Rauðás 8
Skoða eignina Rauðás 8
Rauðás 8
110 Reykjavík
271.4 m2
Raðhús
825
650 þ.kr./m2
176.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin