Fasteignaleitin
Opið hús:25. okt. kl 14:00-14:30
Skráð 22. okt. 2026

Sigtún 35

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
91.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
819.475 kr./m2
Brunabótamat
45.000.000 kr.
Byggt 1948
Jarðhæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
20192871
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Valhöll og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali s. 777-2882 kynna mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi í snyrtilegu fjórbýlishúsi miðsvæðis í Reykjavík. Eignin er skráð 91,4 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, þar eru allir fermetrar innan íbúðarinnar og skipulag gott.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum þar með talið er nýtt eldhús, gólfefni og gólfhiti í eldhúsi og forstofu, baðherbergi endurnýjað og skipt um glugga í íbúð. Húsið sjálft hefur fengið gott viðhald í gegnum árin m.a. verið endurnýjað þak, þakkantur, ytra byrði endursteinað ofl. Frábær staðsetning í jaðri Laugardalsins, stutt er í skóla og leikskóla, Laugardalslaugina, líkamsrækt og öflugt barna- og unglingastarf Þróttar.
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með fatahengi, flísum á gólfi og gólfhita.
Stofa björt og rúmgóð með vínylparketi á gólfi.
Eldhús var endurnýjað árið 2024, þar er mikið hirslupláss, tækjaskápur með rafmagni, innbyggð uppþvottavél og rúmgóður borðkrókur, á gólfi er vínilparket og gólfhiti. 
Svefnherbergisálma er aðgreind með rúmgóðum gangi/holi með nýjum skápum og vínylparketi á gólfi. Hjónaherbergi rúmgott með nýjum skápum og vínylparketi á gólfi. Svefnherbergi með vínylparketi á gólfi.
Baðherbergi er endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf með snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu, handklæðaofni og glugga með opnanlegu fagi.
Geymsla er innan íbúðar. Sameiginlegt þvottahús er í sameign hússins á hæð íbúðar.
Endurbætur innan íbúðar:
2025 Skipt um glugga íbúðarinnar
2024 Skipt um gólfefni: flísar á forstofu og baðherbergi, vínylparket á öðrum rýmum. Ný eldhúsinnrétting, nýir skápar í holi og hjónaherbergi, og gólfhiti lagður í forstofu og eldhús.
Viðhald á húsinu í gegnum árin:
2023 – Vatns- og frárennslislagnir yfirfarnar (endurnýjaðar 2005).
2022 – Þak hússins endurnýjað
2017 – Húsið tekið í gegn að utan með steypuviðgerð og endursteiningu, og þakkantur steyptur upp á nýtt. Stigagangur teppalagður og málaður.
2014 – Skólp og dren endurnýjað og garðurinn tekinn í gegn.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@valholl.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Valhöll fasteignasala ehf.
http://valholl.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þórsgata 25
Opið hús:27. okt. kl 17:00-17:30
kjartan_vefur-(18).jpg
Skoða eignina Þórsgata 25
Þórsgata 25
101 Reykjavík
99 m2
Fjölbýlishús
412
959 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (211)
Hleðslustöð
Opið hús:25. okt. kl 13:00-13:30
kjartan_vefur-211.jpg
Skoða eignina Laugaborg (211)
Laugaborg (211)
105 Reykjavík
101,2 m2
Fjölbýlishús
312
1007 þ.kr./m2
101.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 112
Hleðslustöð
Opið hús:25. okt. kl 13:00-13:30
kjartan_vefur-112.jpg
Skoða eignina Laugaborg 112
Laugaborg 112
105 Reykjavík
105 m2
Fjölbýlishús
312
950 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (102)
Hleðslustöð
Opið hús:25. okt. kl 13:00-13:30
kjartan_vefur-102.jpg
Skoða eignina Laugaborg (102)
Laugaborg (102)
105 Reykjavík
80,9 m2
Fjölbýlishús
312
989 þ.kr./m2
80.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin