Fasteignaleitin
Opið hús:06. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 29. júlí 2026

Háteigsvegur 12

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
156.5 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
145.000.000 kr.
Fermetraverð
926.518 kr./m2
Fasteignamat
116.300.000 kr.
Brunabótamat
85.760.000 kr.
Byggt 1960
2. hæð af 4
Garður
Svalir
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2011412
Landnúmer
103208
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar 2004
Gluggar / Gler
Nýir
Þak
Viðgert og endurnýjað að mestu 2026
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir: LAUS VIÐ KAUPSAMNING - Mjög rúmgóð, vel skipulögð og töluvert endurnýjuð 5 herbergja sérhæð á 2. hæð með bílskúr og tvennum svölum í glæsilegu steinuðu fjórbýli á frábærum stað í miðborginni í göngufæri við alla helstu þjónustu. Íbúðin skiptist í rúmgott hol, stóra stofu með útgengi á suðvestur svalir, 4 svefnherbergi, nýendurnýjað baðherbergi, gestasnyrtingu og eldhús. Nýir gluggar og nýviðgert þak. Í kjallara er sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús. Sameiginlegur bílskúr (ekki innifalinn í fermetratölu).   Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs, í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is
 
Nánari lýsing:
Húsið var byggt 1960 og í því eru 4 íbúðir og er fallegur gróinn garður bak við húsið. Viðhald hefur alltaf verið gott og var húsið múrviðgert og steinað að utan 2004. Þá var einnig sett snjóbræðsla í innkeyrslu og stétt meðfram húsinu.  2012 var drenað og frárennslilagnir endurnýjaðar. 2020 var skorsteinn viðgerður og endurmúraður. 2022 var allur steinn málaður, húsið háþrýstiþvegið, sílanborið og svalir flotaðar. Í ár var þakið tekið í gegn, pappi og járn endurnýjað. Í íbúðinni sjálfri er nýlokið við að endurnýja alla glugga og endurnýja allt á baðherbergi.

 
Forstofuhol: Rúmgott með áfastri hillusamstæðu. Tengir saman aðalrými íbúðarinnar.
Gestasnyrting: Innaf holi. Upprunalegt með dúk á gólfi og litlum vaski.
Stofa/borðstofa: Eitt mjög stórt og bjart rými með tveimur stórum gluggum og útgengt á um 10 fm suðvestur svalir.
Svefnherbergi/skrifstofa: Innaf stofu. Rúmgott herbergi með innbyggðum bókahillum og rennihurð.
Eldhús: Með hvítri innréttingu og nægu rými fyrir eldhúsborð.
Svefnherbergisálma: Gangur með skápum yfir heilan vegg tengir svefnherbergin 3 og baðherbergið. Hjónaherbergið er með skápum yfir heilan vegg og útgengt á litlar svalir í suður. Herbergi 2 er með þreföldum skáp og Herbergi 3 er skápalaust. Öll herbergin eru rúmgóð.
Baðherbergið: Verið var að ljúka við algjöra endurnýjun á baði. Það er nú flísalagt í hólf og gólf með sturtu með glervegg, upphengdu salerni, innréttingu við vask og speglaskápum á vegg. Handklæðaofn og gluggi.
Gólfefni: Korkur er á öllum gólfum nema á baðherbergi og gestasnyrtingu.
Sameign/sérgeymsla: Í kjallara er sameiginlegt þvottahús ásamt 10,7 fm sérgeymslu.
Bílskúr: Bílskúrinn er sameign þessarar íbúðar og íbúðar á 1. hæð og er skráður sem 50,9 fm sameign og hlutur þessarar íbúðar 22,1 fm. Þessir fermetrar koma ekki fram í skráningu skráðum fermetrafjölda íbúðarinnar.  Aðkeyrsla er hellulögð með hitalögn.
Lóðin: Er 753 fm að stærð og er sameiginleg. Grasblettur og stétt með hitalögn er fyrir framan húsið en bak við það er fallegur gróinn garður með grasflöt, trjám og öðrum gróðri.
 
Mjög mikið endurnýjuð og falleg 5 herbergja íbúð með bílskúr í glæsilegu húsi á frábærum stað. ÍBÚÐIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs, í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is  
 
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari
ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1960
Fasteignanúmer
2011412
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.410.000 kr.
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugateigur 5
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Laugateigur 5
Laugateigur 5
105 Reykjavík
151.1 m2
Hæð
513
824 þ.kr./m2
124.500.000 kr.
Skoða eignina Bergstaðastræti 9A
Bergstaðastræti 9A
101 Reykjavík
147 m2
Hæð
612
1082 þ.kr./m2
159.000.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16 ÞAKÍBÚÐ 502 m bílskúr
Bílskúr
Efsta hæð
Hleðslustöð
Hnjúkamói 16 ÞAKÍbúð 502 m bílskúr
815 Þorlákshöfn
157 m2
Fjölbýlishús
413
700 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Ísleifsbúð 17, með bílskúr
Bílskúr
Á einni hæð
Ísleifsbúð 17, með bílskúr
815 Þorlákshöfn
153.9 m2
Raðhús
413
528 þ.kr./m2
81.200.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin