Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna, Holtsveg 27, Urriðaholti í Garðabæ, íbúð 0202 fnr. 250-0209 - FRÁBÆR EIGN FYRIR FYRSTU KAUPENDUR. - YFIRBYGGÐAR SVALIR - SÉR INNGANGURÍbúðin er skráð hjá þjóðskrá 76,5 fm og er íbúðarhluti 69,4fm og geymsla 7,1 Fm. Lokaðar svalir um 9,6 fm eru ekki inni í birtum fermetrafjölda íbúðarinnar. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð. Skráð byggingarár hússins er 2018 og er húsið 5 hæða lyftuhús og er íbúðin á 2. hæð hússins. Góð lofthæð er í íbúðinni. Hægt er að fara inn í íbúðina án þess að fara í gegnum sameign. Hægt er að fara yfir íbúðina hér að neðan í þrívíddarhlekk og svo er gólfteikning sem sýnir fyrirkomulag íbúðar þar sem ljósmyndir af eigninni eru. FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3DNánari lýsing:Aðkoma: Malbikað fyrir framan húsið og eru bílastæði fyrir framan innganginn í andyrrið. Snyrtileg sameign er í húsinu.
Forstofa: Flísar á gólfi. Rúmgóður fataskápur og fathengi eru í forstofunni.
Stofa: Harðparket á gólfi. Útgengt út á góðar svalir með lokun sem snúa til suð-vesturs. Plastflísar eru á gólfi svala.
Eldhús/borðstofa: Harðparket á gólfi. Eldhúsið er opið inn í stofu með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum og flísum á milli skápa, AEG ofn í vinnuhæð. Keramik helluborð með Elica viftu yfir. Innbyggð uppþvottavél.
Hjónaherbergi: Harðparket á gólfi. Rúmgóður fataskápur. Gólfsíður gluggi sem gefur góða birtu í rýmið.
Barnaherbergi: Harðparket á gólfi. Fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi. Falleg innrétting með efri og neðri skápum. Vegleg innrétting í kringum þvottavél. Flísalögð sturta. Upphengt salerni og opnanlegur gluggi.
Geymslur: Læst geymsla er á jarðhæð og er hún skráð 7,1 fm. Í sameign er svo sameiginleg hjóla/vagnageymsla.
Bílastæði: Bílastæði eru fyrir framan húsið og auðvelt að finna bílastæði í nágrenninu.
Holtsvegur 27 er 5 hæða vandað fjölbýlishús með 10 íbúðum. Húsið er klætt að utan með álklæðningu og ál/tré gluggum þannig að hús er viðhaldslétt. Snyrtileg sameign. Húsið er staðsett neðarlega í hverfinu og er fljótlegt að komast á stofnbrautir úr húsinu. Stutt í þjónustu og er t.d leikskóli neðar í götunni. Stutt í skóla og fallega náttúru sem er í nálægð við hverfið. Góðir göngu og hjólastígar í hverfinu. Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s:
861-7507 eða á
daddi@remax.is- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Í
lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.