Hraunhamar kynnir fallega og mikið endurnýjaða íbúð á annarri hæð á þessum frábæra útsýnistað í Hólahverfinu í Reykjavík. Íbúðin er fjögurra herbergja og er 102,8 fermetrar með geymslu.
Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, stofa, eldhús, þrjú herbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, yfirbyggðar svalir og geymsla, auk reglubundinnar sameignar.
Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa með fataskápum.
Gott
hol og
sjónvarpshol. Eldhús með smekklegri nýlegri innréttingu, borðkrókur í eldhúsinu.
Björt
stofa og þaðan er utangengt út á yfirbyggðar svalir. þaðan er glæslilegt útsýni.
Rúmgott
hjónaherbergi með fataskápum.
Tvö fín
barnaherbergi. Fallegt flísalagt
baðherbergi með innréttingu, baðkar og þar er sturtuaðstaða.
Í kjallara er
sérgeymsla, auk reglubundinnar sameignar.
Gólfefni eru nýlegt harðparket og flísar.
Skv. upplýsingum seljenda þá hafa þessar framkvæmdir verið gerðar undanfarin ár.
· Þak endurnýjað
· Báðir gaflar teknir í gegn
· Vesturhlið endurnýjuð
· Sjálfvirk lýsing sett upp í geymslugöngum
· Ný þvottavél í sameiginlegu þvottarými
· Nýleg lyfta í húsinuÞetta er reglulega fín eign sem vert er að skoða.
Við Arahóla 2 á hæsta punkti Reykjavíkur og nýtur 180° útsýnis yfir Akrafjall, allt Snæfellsnes, Faxaflóa og Reykjanes, þar á meðal Keili.
úsýnið er algjörlega óhindrað og eitt það besta sem býðst á höfuðborgarsvæðinu.
Húsið einkennist af stöðugum og rótgrónum íbúahópi, þar sem margir íbúar eru upphaflegir. Um er að ræða rólegt og vel rekið fjölbýli.Nánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.