Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Valfell fasteignamiðlun og Nova Progressus ehf kynna: Sementsbraut 15 og sýningaríbúð á 3. hæð. ( íbúð 305 )
Bjóðum upp á einkaskoðun samkvæmt samkomulagi. Um er að ræða sérlega glæsilegt 3ja hæða lyftuhús við Semenstbraut 15 sem verður tilbúið til afhendingar í sept. 2026. Húsið stendur í nýjasta nýbyggingarhverfi Akraness og er hannað með áherslu á gæði, gott skipulag og vandað efnisval.
Í fyrri áfanga eru 15 íbúðir til sölu, 2ja og 3ja herbergja, og allar skilast fullbúnar með gólfefnum. Öllum íbúðum fylgir bílastæði í sameiginlegum bílakjallara.
Íbúðir á efstu hæð eru með aukinni lofthæð og hljóðeinangrandi dúk í lofti.
Íbúð 304 er fallega hönnuð 61,4 fm. 2ja herbergja á 3. hæð með suðaustur-svölum, stæði í bílakjallara og sérgeymslu. Hljóðeinangrandi dúkur í lofti og
aukin lofthæð gefa íbúðinni aukin þægindi og sjarma.
Eldhús og stofa í björtu alrými með útgengi á svalir
Eldhús með fallegri innréttingu, spanhelluborði og kæli‑/frystiskáp
Tengi fyrir uppþvottavél
Eitt svefnherbergi með fataskáp
Baðherbergi flísalagt, opinn sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn
Forstofa með fataskáp
Afhending er áætluð í sept. 2026. Sjá nánar á sölusíðu Með því að smella hér · Timbur‑ál gluggar og útihurðir. Roda frá Litháen
· Klæðning utan húss: Cembrit trefjaplötur, álklæðning frá Áltak, bandsöguð furuklæðning og tíglaklæðning úr áli.
· Allar meginleiðir við húsið eru með snjóbræðslu, þar á meðal rampur niður í bílakjallara.
· Í bílakjallara er búið að leggja fyrir dreifiboxum fyrir hleðslustöðvar. Hitablásarar.
· Lóð er frágengin með hellum, munstursteypu, gúmmíhellum, gróðri og blandaðri útilýsingu.
· Djúpgámar eru á lóðinni.
· Í bílakjallara er aðgengi að sérgeymslum, sameiginlegri hjóla‑ og vagnageymslu ásamt tæknirými.
Allar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is