Fasteignaleitin
Skráð 2. ágúst 2025

Mardalur 24

RaðhúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
118.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
714.646 kr./m2
Fasteignamat
82.650.000 kr.
Brunabótamat
75.050.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2332415
Landnúmer
209491
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt (2021)
Raflagnir
Upprunalegt (2021)
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2021)
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2021)
Þak
Upprunalegt (2021)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Stór afgirt timburverönd
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
** Endaraðhús í rólegri botngötu ** Stór afgirt timburverönd til suðurs ** Innbyggður bílskúr ** Aukin lofthæð og gólfhiti ** Hiti í stétt og bílaplani ** Laus strax **

Fasteignasalan TORG og Margrét Rós lgf. kynna í sölu fallegt og vel skipulagt 3 herbergja endaraðhús á einni hæð með innangengum bílskúr og stórri 80 m2 afgirtri timburverönd til suðurs innst í rólegri botnlangagötu, við Mardal 24 í innri Njarðvík. Um er að ræða nýlega og vel staðsetta eign sem skiptist í forstofu, hol, eldhús ásamt stofu og borðstofu í opnu rými, með nýlegri kamínu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sér þvottaherbergi innan íbúðar auk geymslu inn af bílskúr. Koníaksflísar á öllum rýmum íbúðar og all flest rými eru með aukinni lofthæð. Bílskúr er innbyggður og innangengur frá íbúðarrými. Gólfhiti er í öllu húsinu, en rafhitun á vatnshitakerfi er til staðar ef hitaveita bregst.
 Aðkoma að húsinu er til fyrirmyndar, stétt að framanverðu og bílastæði eru hellulögð og með snjóbræðslu. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is.
** FÁ SÖLUYFIRLIT SENT **


Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 118,8 m² þar af er bílskúr 22,4 m² 

Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni, m.a. leik- og grunnskóli, sundlaug og íþróttaaðstaða bæði úti og inni. Stutt er í stofnbrautir auk þess sem svæðið er umlukið fallegri náttúru með fallegum göngu- og hjólaleiðum meðfram sjávarlínuna og Reykjarnesið. Um 10 mínútna akstur yfir í flugstöð og miðbæ Reykjanesbæjar þar sem finna má verslanir, þjónustu, sundlaug og margt fleira. 

Nánari lýsing eignar:
Forstofa er rúmgóð með stórum fataskáp og flísum á gólfi. 
Svefnherbergi er inn af forstofu, með fataskáp og flísum á gólfi. 
Eldhús með fallegri innréttingu, mikið skápapláss, stórt helluborð með gufugleypi. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur, tveir ofnar í vinnuhæð, svartur vaskur og blöndurtæki. Tveir gluggar.
Borðstofa/Stofa eru samliggjandi í opnu og björtu rými með fallegri kamínu og útgengt á afgirta verönd.
Garður að aftanverðu er afgirtur og lokaður með timburverönd (c.a. 80m2) sem snýr í suður og með grillskýli. Útgengi um læst hlið út á stétt meðfram húsinu.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskápum. 
Baðherbergi er flísalagt með walk in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og fallegum ljósaspegli. 
Þvottahús er innan íbúðar og þaðan er innangengt í bílskúrinn. 
Bílskúr er rúmgóður og snyrtilegur með rafdrifinni hurð og rúmgóðu geymslulofti yfir stórum hluta bílskúrs. Stórar gráar flísar á gólfi.
Geymsla inn af bílakúr með stórum flísum á gólfi og geymslulofti. Útgengt þaðan í bakgarðinn. 
Bílastæði og stétt framan við hús er hellulögð og með snjóbræðslu. Rúmar auðveldlega þrjá bíla. Tengingar tilbúnar fyrir rafhleðslustöð 

** Fallegar Koníaks-parketflísar á öllu íbúðarrými og stórar gráar flísar í bílskúr.
** Tvískipt hitakerfi - Gólfhiti er í öllu húsinu, til staðar er rafhitun á vatnshitakerfi ef hitaveita bregst.
** Útgangar út á sólpall eru tveir, annar frá stofu og hinn frá geymslurými með góðu geymslulofti.
** Nýleg kamína frá Rótor, uppsett af Blikkás Funi blikksmiðju er vel staðsett í stofu.
** Afar sólríkur og skjólgóður 80msólpallur sem snýr til suðurs afgirtur og lokaður með skjólveggjum. Útgengt af palli um læst hlið út á stétt sem er meðfram húsinu.


ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? SMELLTU HÉR

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/07/202229.750.000 kr.72.500.000 kr.118.8 m2610.269 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2021
22.4 m2
Fasteignanúmer
2332415
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
06
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.700.000 kr.

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Freyjugata 32
Opið hús:19. apríl kl 17:00-17:30
móa_vefur (4).png
Skoða eignina Freyjugata 32
Freyjugata 32
101 Reykjavík
89.1 m2
Fjölbýlishús
413
1117 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 41 (Vesturvin 1) íb 308
Opið hús:19. apríl kl 14:00-14:30
móa_vefur (20).jpg
Mýrargata 41 (Vesturvin 1) íb 308
101 Reykjavík
94.5 m2
Fjölbýlishús
312
1063 þ.kr./m2
100.500.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 206
Opið hús:19. apríl kl 14:00-14:30
móa_vefur (3).png
Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 206
101 Reykjavík
93.7 m2
Fjölbýlishús
332
1020 þ.kr./m2
95.600.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 407
Opið hús:19. apríl kl 14:00-14:30
móa_vefur (1).png
Ánanaust 1 (Vesturvin 2) íb 407
101 Reykjavík
78.4 m2
Fjölbýlishús
312
1115 þ.kr./m2
87.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin