Fasteignaleitin
Skráð 24. maí 2026

SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
122 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
83.900.000 kr.
Fermetraverð
687.705 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
102240526
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ VIÐ LA FINCA GOLFVÖLLINN
Falleg og vönduð einbýlishús á einstaklega eftirsóttum stað við hinn glæsilega La Finca golfvöll á Costa Blanca.  Nútímaleg eign í fallegum Miðjarðarhafsstíl þar sem vönduð hönnun og hlýlegt Miðjarðarhafsyfirbragð fara einstaklega vel saman.
Húsin eru öll á einni hæð með góðu skipulagi, rúmgóðu alrými, þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Sér garður með einkasundlaug, fallegar verandir og góð útiaðstaða til að njóta sólarinnar allt árið um kring. Bílastæði inni á lóð.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.  adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is. 0034 615 112 869.

Nánari lýsing:

Húsin skiptast í bjart og rúmgott alrými með stofu, borðstofu og fallegu eldhúsi með góðri tengingu út á verönd og garðsvæði.
Þrjú góð svefnherbergi og tvö glæsileg baðherbergi.
Frá stofu er útgengt út á rúmgóða verönd og lokaðan garð með einkasundlaug og góðri aðstöðu til að njóta lífsins í spænsku sólinni.
Falleg hönnun, stórir gluggar og vandaður frágangur skapa bjarta og glæsilega eign á einum eftirsóttasta stað Costa Blanca svæðisins.
Mikið innifalið:
Einkasundlaug
Fullfrágenginn sér garður
Rafdrifnar gardínur
Hiti í gólfum á baðherbergjum
Innbyggt loftræsti- og loftkælikerfi
Vandað eldhús og baðherbergi
Bílastæði inni á lóð
Hér er um að ræða glæsilegar eignir á rólegum og fallegum stað við einn vinsælasta golfvöll svæðisins.

Verð:
Frá 579.000 evrum + kostnaður við kaupin. (ISK 83.900.000)

Um svæðið – La Finca Golf
La Finca Golf er eitt vinsælasta og glæsilegasta golfsvæði Costa Blanca. Svæðið er þekkt fyrir fallegan 18 holu golfvöll, vandað umhverfi og rólegt andrúmsloft. Þar er gott úrval veitingastaða, kaffihúsa, verslana og þjónustu ásamt glæsilegu spa- og golfhóteli.
Svæðið hentar einstaklega vel fyrir golfara, fjölskyldur og þá sem vilja njóta lífsins í fallegu og sólríku umhverfi allt árið um kring. 
Stutt er á fallegar strendur Costa Blanca og stutt í verslunarmiðstöðvar á borð við La Zenia Boulevard og Habaneras og fleiri góða golfvelli.


Hér er um að ræða einstaka eign fyrir fólk sem vill sameina gæði, þægindi og einstaka staðsetningu.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin. Samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því verið um 13%.
Eiginleikar: einkasundlaug, sér garður, golfútsýni, ný eign, bílastæði, nútímaleg hönnun, golfsvæði,
Svæði: Costa Blanca, La Finca,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
102240526

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skólavörðustígur 26A
Skólavörðustígur 26A
101 Reykjavík
94.2 m2
Einbýlishús
322
839 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Skoða eignina Skipagata 7
Skoða eignina Skipagata 7
Skipagata 7
600 Akureyri
104 m2
Fjölbýlishús
412
720 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 64
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 64
Naustavör 64
200 Kópavogur
89.4 m2
Fjölbýlishús
211
1062 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
95.4 m2
Fjölbýlishús
211
995 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin