Fasteignaleitin
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skráð 28. maí 2026

Kóngsbakki 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
158.5 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
85.900.000 kr.
Fermetraverð
541.956 kr./m2
Fasteignamat
85.600.000 kr.
Brunabótamat
71.750.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1968
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2048411
Landnúmer
111877
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að mestu
Þak
Endurnýjað þakjárn, pappi og timbur sem þörf var á
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita / gólfhiti í eldhúsi og baðherbergi
Inngangur
Sameiginlegur
Gallar
Fataskápar í hjónaherbergi og forstofu eru upprunalegir og rennihurðar orðnar lúnar. 
Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna fallega, bjarta og rúmgóða sex herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð í snyrtilegu fjölbýlsihúsi. Hér er um að ræða einstaklega hentuga eign fyrir stóra barnafjölskyldu. Eignin skiptist í 5 svefnherbergi, 2 baðherbergi, gott þvottahús innan íbúðar, rúmgóða stofa og borðstofu með útgengi út á suðursvalir, rúmgott eldhús með miklu skápaplássi. Tvær stórar geymslur eru í sameign ásamt hjóla og vagnageymslu.  Skv. HMS er eignin skráð 158,5 fm2, þar af er 15,8fm2 geymsla. 

Mjög falleg og vel skipulögð íbúð sem hentar vel þörfum stærri fjölskyldna í húsi sem hlotið hefur gott viðhald í gegnum árin. Snyrtileg sameign og lóð. Góð staðsetning þar sem stutt er út á helstu stofnbrautir og í alla helstu þjónustu s.s skóla, leikskóla, verlsanir og aðra þjónustu. 

Helstu framkvæmdir við húsið á undanförnum árum: 
  • 2020-2021 Þak endurnýjað, skipt um pappa, járn og timbur sem þörf var á. 
  • 2020-2024 Hluti af gluggum endurnýjaðir.
  • 2022-2024 Húsið múrviðgert og málað.
  • 2022-2024 Gaflar klæddir ásamt austurhlið hússins.
  • 2022-2024 Skipt um timburhandrið á svölum og svalagólf viðgerð og máluð.
  • 2024 Skipt um hluta af skólplögnum í kjallara stigagangs nr. 6.
  • Gler hefur verið endurnýjað í flestum gluggum innan íbúðar.

Helstu framkvæmdir innan íbúðar að sögn seljenda:
  • 2024 Skipt um gólfefni á alrými og herbergjum. 
  • 2025 Sett upp þvottahúsinnrétting ásamt rafmagni í sértöflu fyrir þvottavél og þurrkara. 
  • 2026 Skipt um blöndunartæki í vaski á stærra baðherbergi. 
  • 2026 Skipt um innréttingu á gestasalerni. 
  • 2026 Skipt um krana undir báðum vöskum á baðherbergjum. 

Lýsing eignar:
Mjög snyrtileg sameign. 
Forstofa með góðum fataskáp með rennihurðum og flísum á gólfi.
Gestasalerni er inn af forstofu með nýlegri innréttingu, vaski og salerni, flísar á gólfi og málaðir veggir. 
Borðstofa og stofa eru samliggjandi í opnu rými, útgengt er á svalir úr borðstofu. Harðparket á gólfi. 
Eldhúsið er stórt og bjart  með U innréttingu með miklu skápaplássi og hólfi fyrir amerískan ísskáp, helluborð með nýlegum háf yfir, ofn í vinnuhæð, góður borðkrókur með fallegum gólfsíðum glugga, flísar á gólfi. 
Barnaherbergi 1: Rúmgott herbergi með harðparketi á gólfi er á vinstri hönd þegar komið er inn úr forstofu. 
Svefnherbergisgangur er með harðparketi á gólfi, þaðan er gengið inn í 4 herbergi, baðherbergi og þvottahús. 
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp með rennihurðum og fallegum gólfsíðum glugga, harðparket á gólfi. 
Barnaherbergi 2: Harðparket á gólfi, laus fataskápur. 
Barnaherbergi 3: Harðparket á gólfi, laus fataskápur. 
Barnaherbergi 4: Harðparket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi, innrétting með niðurfelldum vaski, rúmgóðir háskápar á heilum vegg, flísalagðir veggir að hluta. Baðkar með sturtu og glerþili, upphengt salerni. 
Þvottahús: Nýleg snyrtileg innrétting, með góðu skápaplássi, flísar á gólfi. 
Svalir: Fínar svalir sem snúa ti suðurrs.
Geymsla: Í sameign er mjög rúmgóð, tæplega 16 fm geymsla auk ca. 6 fm geymslu sem ekki er skráð inn í fermetratölu eignarinnar. 
Lóð og garður:  Snyrtileg lóð og sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn. 
Við útidyr er sérinngangur í sameiginlega hjóla og vagnageymsla. 


Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/04/202366.000.000 kr.72.000.000 kr.158.5 m2454.258 kr.
04/10/201844.700.000 kr.47.000.000 kr.158.5 m2296.529 kr.
24/11/200621.070.000 kr.24.800.000 kr.158.5 m2156.466 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Ísleifsbúð 17
815 Þorlákshöfn
153.9 m2
Raðhús
413
528 þ.kr./m2
81.200.000 kr.
Skoða eignina Rauðalækur 19
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:27. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Rauðalækur 19
Rauðalækur 19
105 Reykjavík
164.4 m2
Hæð
724
699 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47
Skoða eignina Hjallabraut 47
Hjallabraut 47
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47
Skoða eignina Hjallabraut 47
Hjallabraut 47
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin