Fasteignaleitin
Skráð 8. júlí 2026

Steinahlíð 2C

RaðhúsNorðurland/Akureyri-603
193 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
114.900.000 kr.
Fermetraverð
595.337 kr./m2
Fasteignamat
92.450.000 kr.
Brunabótamat
94.350.000 kr.
Mynd af Helgi Steinar Halldórsson
Helgi Steinar Halldórsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 1976
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2150809
Landnúmer
149470
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Talið í lagi - Ekki skoðað.
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Talið í lagi - Ekki skoðað.
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Talið í lagi - Ekki skoðað.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
33,3
Upphitun
Hitaveita - Ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Þakið er á eigninni er að einhverju leiti myglað. Seljendur komust að því þegar þau opnuðu upp og skoðuðu þakið þegar eignin átti að fara í sölu.
Kasa fasteignir 461-2010.

Steinahlíð 2C. Töluvert endurnýjuð, falleg og vel skipulögð 5 herbergja 193 fm íbúð í vestur enda í 3 íbúða raðhúsi með suður verönd á vinsælum stað í Glerárhverfi.

Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:

Efihæð: Stofa og borðstofa í opnu rými, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi ásamt suður svölum.
Neðrihæð: Þrjú svefnherbergi, baðherbergi, bílskúr, þvottahús og geymslu. Gengið er út á suðurverönd af neðrihæð.

Efrihæð:
Forstofa: Er á miðpalli, þar eru flísar á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Bjart opið rými með stórum gluggum. Parket á gólfi.
Eldhús: Þar er U laga innrétting með góðu skápa og skúffuplássi. Pláss fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Bakaraofn í vinnuhæð.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting með efri og neðriskápum, vaskur í borðplötu. Baðkar með sturtutækjum og gleri, vegghengt salerni. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Svefnherbergi: Eru tvö á hæðinni, bæði með parketi á gólfum. Góður fataskápur er í hjónaherbergi, enginn skápur er í minna herberginu.

Neðrihæð:
Gangur: Er flísalagður, þar er gólfhiti.
Svefnherbergi: Eru þrjú á neðrihæðinni, tvö þeirra eru mjög rúmgóð og eitt minna. Öll eru með parketi á gólfum.
Baðherbergi: Er ný uppgert, þar er skúffuinnrétting með vaski. Vegghengt salerni og sturta með sturtugleri.
Þvottahús: Er í rými undir stiga, þar er epoxý á gólfum, góð innrétting með þvottavél og þurrkara í vinnuhæð með skolvask til hliðar.
Geymsla: Er inn af þvottahúsi, óupphitað rými.
Bílskúr: Er nokkuð rúmgóður, með rafdrifinni hurð og gönguhurð til hliðar, þar er epoxy á gólfum og nýleg lýsing.

Viðhald síðustu ár:
2026 - Ný rafmagnstafla og leitt út fyrir bílahleðslustöð - Baðherbergi endurnýjað á neðri hæð - Vatnslögn leidd frá baðherbergi út fyrir heitann pott. Svefnherbergi einangrað á ný, nýjar veggplötur settar og herbergið málað.
2025 - Hús málað að utan - Epoxy gólfefni sett á bílskúr og þvottahús/kjallari.
2023 - Skipt um framhlið í forstofu (hurð og gluggar) og forstofa gerð upp - ný útihurð út í garð.
2020 - Gólf flotað á efri hæð - QuickStep parket lagt á allt húsið fyrir utan baðherbergi og gang niðri þar sem er hiti i gólfi. Allar hurðir endurnýjaðar.
2017 - Drenað í kringum hús Ljósleiðari.

- Þak þarfnast endurnýjunar. 
- Frábær staðsetning í vinsælu hverfi, stutt í íþróttasvæði Þórs og Glerárskóla.
- Gróin lóð í kringum húsið.
- Suður sólpallur með timbur gólfi og veggjum.
- Heitur pottur fylgir með við sölu, potturinn er gamall og ótengdur, ástand er óvitað.
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur.
- Eignin er í einkasölu.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/03/202049.600.000 kr.52.900.000 kr.193 m2274.093 kr.
16/06/201734.900.000 kr.48.000.000 kr.193 m2248.704 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (51)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sæbólsbraut 27
Skoða eignina Sæbólsbraut 27
Sæbólsbraut 27
200 Kópavogur
197.1 m2
Raðhús
624
791 þ.kr./m2
155.900.000 kr.
Skoða eignina Kistuholt 2
Á einni hæð
Skoða eignina Kistuholt 2
Kistuholt 2
806 Selfoss
136.2 m2
Parhús
413
447 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Skoða eignina Kambsvegur 23
Skoða eignina Kambsvegur 23
Kambsvegur 23
104 Reykjavík
93.9 m2
Fjölbýlishús
312
808 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Ísleifsbúð 17
815 Þorlákshöfn
153.9 m2
Raðhús
413
528 þ.kr./m2
81.200.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin