Fasteignaleitin
Skráð 6. okt. 2026

Fannafold 22

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
152.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
130.000.000 kr.
Fermetraverð
851.900 kr./m2
Fasteignamat
117.800.000 kr.
Brunabótamat
84.300.000 kr.
Mynd af Sölvi Þór Sævarsson
Sölvi Þór Sævarsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1985
Garður
Pallur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2041766
Landnúmer
110085
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar raflagnir
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Upphaflegir Búið að endurnýja gler að hluta
Þak
Upphaflegt þak
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Ofnalagnir
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Hægri bílskúrshurð er undinn ( bogin inn á við í miðju) óvíst er hvort hægt sé að opna hana
Valhöll og Sölvi Þ. Sævarsson lgfs, kynna í einkasölu: Snyrtilegt og mjög vel viðhaldið 152,6 m einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr að Fannafold 22. Sólpallur út af stofu og gróin lóð með trjágróðri og geymsluskúr á lóð við sólpall.
Húsð skiptist í anddyri, eldhús og þvottahús inn af eldhúsi, stofu, borðstofu þar sem hurð er út á lóð í suður, sjónvarpherbergi, hjónaherbergi og barnaherbergi ásamt baðherbergi. Upphaflega er húsið með þremur svefnherbergjum en í dag eru herbergin tvö, lítið mál að bæta við þriðja herberginu og jafnvel fjórða herberginu þar sem sjónvarpsrými er í dag. Stór tvöfaldur bílskúr sem býður upp á mikla möguleika.  Húsið er selt með fyrirvara sem rennur út 12 nóv 2026.
 
  • Elshúsinnrétting endurnýjuð með granítborðplötu.
  • Vönduð gólfefni.
  • Skjólgóður pallur út af stofu.
  • Tvöfaldur sérstæður bílskúr.
  • Gler endurnýjað að mestu 2022

Eignin er í heild skráð 152,6 m²  skv. Hms, þar af er bílskúr 45,9 m²  
 
Vel staðsett einbýlishús í Foldahverfi Grafarvogs sem vert er að skoða.
 
Nánari  upplýsingar veitir: Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064/ solvi@valholl.is 

Nánari lýsing:
Anddyri – Flísar á gólfi, hvítir fataskápar og glerhurð inn í íbúðarrými.
Eldhús – Rúmgott eldhús með hvítri endurnýjaðri innréttingu frá Kvikk, granítborðplötur, undirfelldur vaskur og niðurfellt helluborð og vifta á vegg. Glerflísar á vegg við borðplötu. Gott skápapláss í innréttingu. Niðurlímt parket á gólfi.
Þvottahús – Inn af eldhúsi er ágætlega rúmgott þvottahús, hvít innrétting með góðu skáparými, skolvask og rými fyrir þvottavél og þurkara í góðri vinnuhæð. Flísar á gólfi. Hurð úr þvottahúsi að innkeyrslu framan við hús.
Stofa/borðstofa – Rúmgóð stofa og borðstofa í sameiginlegu rými með hurð út á lóð og garð í suður. Niðurlímt parket á gólfi.
Sjónvarpsrými – Við hlið stofu inn af anddyri með niðurlímdu parketi. Lítið mál er að bæta við þriðja svefnherberginu sem áður var þar og jafnvel tveimur herbergjum og hafa fjögur herbergi.
Hjónaherbergi – Ágætlega rúmgott með hvítum fataskápum og fljótandi parketi á gólfi.
Barnaherbergi – Hvítur fataskápur og fljótandi parket á gólfi.
Baðherbergi – Staðsett á móts við hjónaherbergi með vandaðri hvítri innréttingu sem hefur verið endurnýjuð, spegill með lýsingu ofan við innrétrtingu. Hvítar flísar á veggjum sem ná að lofti, Innfelld næturlýsing við gólf í vegg. Dökkar flísar á gólfi. Sturtuklefi og handklæðaofn á baði. Góður opnanlegur gluggi á baðherbergi. Innbyggt upphengt salerni á vegg með nýjum innfelldum kassa.
Innréttingar og gólfefni: Eldhúsinnrétting er endurnýjuð frá Kvikk innréttingum með granítborðplötu. Fataskápar eru hvítir að lit. Gólfefni á alrými og stofu er niðurlímt harðviðarparket. Innihurðar voru hvítlakkaðar fyrir c.a 10 árum eða árið 2016.

Bílskúr: Rúmgóður bílskúr með tveimur bílskúrshurðum með rafmagnsopnurum. Heit og kalt vatn í bílskúr og gluggar á bílskúr. Geymsluloft yfir stórum hluta bílskúrs með stiga upp. Góð bílastæði á lóð framan við bílskúr.
Hitialögn undir hellum við inngang í hús og bílskúr.

Upplýsingar frá eigendum með framkvæmdir síðustu ára.
- Eldhúsinnrétting endurnýjuð á árinu 2016.
- Baðherbergi og innrétting yfirfarið og endurnýjað að hluta árið 2016.
- Innihurðar sprautulakkaðar fyrir 10 árum.
- Gler yfirfarið og endurnýjað sem þurfti árið 2022.
- Nýlega búið að skipta út innbyggðum kassa við salerni á baðherbergi.

Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 / solvi@valholl.is 
 – eða skrifstofa / s.588-4477 / valholl@valholl.is

 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.


 
 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1985
45.9 m2
Fasteignanúmer
2041766
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.600.000 kr.

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rauðalækur 69
Bílskúr
Opið hús:27. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Rauðalækur 69
Rauðalækur 69
105 Reykjavík
148,4 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
808 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina DALAHRAUN 28
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina DALAHRAUN 28
Dalahraun 28
810 Hveragerði
166,7 m2
Raðhús
514
629 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Krosshamrar 23
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Opið hús:27. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Krosshamrar 23
Krosshamrar 23
112 Reykjavík
198,1 m2
Einbýlishús
624
807 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Laxatunga 104
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Laxatunga 104
Laxatunga 104
270 Mosfellsbær
167,1 m2
Raðhús
413
Fasteignamat 113.050.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin