
VILTU fasteignasala kynnir Lyngmóa 7 í Garðabæ.
Falleg og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á 1. hæð í snyrtilegu, vel við höldnu fjölbýlishúsi. Innangenginn bílskúr (20 m²) er aðgengilegur úr sameigninni. Stofan opnast út á flísalagðar, rúmgóðar svalir til suðurs sem bjóða upp á sól og notalegt útiverupláss. Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er íbúðarhlutinn 115,8 m² og bílskúrinn 20 m², samtals 135,8 m²
Ekki hika við að hafa samband til að bóka skoðun. Kristján Samúelsson, löggiltur fasteignasali í 777-0191 eða kristjan@viltu.is
Íbúðin sjálf er 115,8 m2 og á 1. hæð í 3 hæða blokk. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu. Á jarðhæð er geymsla og bílskúr sem eru 20 m².
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Nánari lýsing:
Forstofa með parketi, innbyggðum fataskáp og stórum spegli.
Eldhúsið er rúmgott með snyrtilegri hvítri innréttingu, flísum milli skápa og á borði og parketi á gólfi. Innbyggður ísskápur og frystir, uppþvottavél, keramik helluborð með hvítum Elica viftuháf og ofn í vinnuhæð. Borðkrókur í eldhúsinu.
Stofa með parketi á gólfi og útgengi á flísalagðar svalir til suðurs.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Barnaherbergi 1 með parketi á gólfi.
Barnaherbergi 2 með parketi og fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og að hluta á veggjum, hita í gólfi, hvít innrétting. Hornnuddbaðkar með sturtu. Opnanlegur gluggi.
Bílskúr/geymsla með epoxí á gólfi, kalt vatn og gönguhurð. Geymsla er innangeng frá sameign og tengist bílskúr innanhúss; gólfið í geymslu er málað og þar eru góðar hirslur og tengi fyrir þvottavél.
Athugið: Innra skipulag er lítillega breytt frá samþykktum teikningum — hurð milli bílskúrs og geymslu kemur ekki fram á teikningum.
Einkabílastæði fyrir framan bílskúr.
Í sameign er þurrkherbergi og hjólageymsla.Húsið er byggt 1982 og hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina. Húsið er á þremur hæðum með samtals 9 íbúðum staðsett í vinsælu hverfi í Garðabænum þaðan sem stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttaiðkun, verslanir og heilsugæslu.
Nánari upplýsingar í síma 583-5000 eða hvad@viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 22/03/2023 | 68.100.000 kr. | 78.500.000 kr. | 135.8 m2 | 578.055 kr. | Já |
| 30/07/2018 | 41.050.000 kr. | 54.900.000 kr. | 135.8 m2 | 404.270 kr. | Já |
| 17/11/2017 | 38.900.000 kr. | 51.500.000 kr. | 135.8 m2 | 379.234 kr. | Já |
| 27/08/2015 | 30.600.000 kr. | 36.500.000 kr. | 135.8 m2 | 268.777 kr. | Já |
| 20/08/2014 | 27.300.000 kr. | 33.900.000 kr. | 135.8 m2 | 249.631 kr. | Já |
| 14/03/2008 | 26.690.000 kr. | 30.000.000 kr. | 135.8 m2 | 220.913 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
108 | 130,9 | 83,9 | ||
107 | 71,6 | 63,5 | ||
210 | 93,3 | 76,2 | ||
112 | 165,9 | 129,9 | ||
112 | 126,4 | 114,9 | ||
201 | 116,1 | 139 |