Vönduð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í Jónshúsi í Sjálandshverfinu í Garðbæ, íbúð fyrir 60 ára og eldri. Jónshús er sex húsa þyrping (Strikið 2-12) með 130 íbúðum fyrir 60 ára og eldri en þar hægt að kaupa léttan hádegisverð og meðlæti gegn vægu gjaldi í samkomusal húsanna á fyrstu hæð. Íbúðin er laus fljótlega eftir kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.isNánari lýsing:
Forstofa með þreföldum fataskáp.
Eldhús með eikar innréttingu frá Brúnás, gott vinnupláss og flísar milli efri og neðri skápa, glerhelluborð, ofn með blæstri í vinnuhæð og gufugleypir með kolsíu.
Þvottahús innaf eldhúsi, flísalagt með hillum.
Stofa, björt og rúmgóð með útgengi út á yfirbyggðar svalir.
Svefnherbergi, rúmgott með góðum eikar fataskáp.
Baðherbergi, flísalagt hólf í gólf með eikar innréttingu frá Brúnás, handlaug, upphengt salerni og sturta.
Geymsla innan íbúðar með góðum hillum og parket á gólfi en margir hafa nýtt rýmið sem vinnuherbergi.
Gólfefni íbúðar er 3ja stafa eikarparket, allar innréttingar og fataskápar eru frá Brúnás, spónlagt með ljósri eik og flísar á baðherbergi og þvottahúsi.
Einnig fylgir eigninni sér geymsla í kjallara og hlutdeild í sameign.
Húsið sjálft er staðsteypt lyftuhús, einangrað að utan og álklætt. Gluggar eru álklæddir timburgluggar með opnanlegum fögum úr áli, tvöfalt verksmiðjugler í gluggum. Aðalhurðir stigahúsa eru hliðopnandi rennihurðir og stigahúsin flísa- og tepplögð. Í miðjuhúsinu er þjónustukjarni í rekstri Garðabæjar þar sem hægt er að kaupa léttan hádegisverð og hressingu alla virka daga og sækja hina ýmsu þjónustu. Í húsinu er einnig salur sem eigendur geta leigt gegn vægu gjaldi. Húsfélagið er vel rekið og stendur mjög vel. Greiðsla í hússjóð er 25.700 kr.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.