Fasteignaleitin
Skráð 14. maí 2024

Laugarásvegur 35

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
494.4 m2
5 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
375.000.000 kr.
Fermetraverð
758.495 kr./m2
Fasteignamat
236.950.000 kr.
Brunabótamat
154.150.000 kr.
Mynd af Karl Lúðvíksson
Karl Lúðvíksson
Sölustjóri - Íbúðareignir
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2019994
Landnúmer
104826
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ágætt
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Ágætt
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Gott
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Ofnar
Inngangur
Margir inngangar
Croisette kynnir í einkasölu glæsilegt og veglegt einbýlishús á þremur hæðum við Laugarásveg 35, 104 Reykjavík.  Húsið er 494 skráðir fm með stórum og veglegum stofum, tvennar stórar svalir með frábæru útsýni, möguleiki á 4-6 herbergjum eftir skipulagi.  Húsið stendur innarlega í rólegum botnlanga og niður af húsinu er garður sem er eins og lítill skógur og þarfnast lítillar umhirðu. Húsið hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum tíðina og stendur á 1047m2 lóð. Stór tvöfaldur bílskúr og nóg af bílastæðum. Fullbúinn útleigueinining er í kjallara með sérinngangi.  Einnig hægt að stækka kjallaraíbúðina þar sem það er óráðstafað rými undir húsinu sem hægt er að opna inní garð að framanverðu. Eignin er laus við kaupsamning. 
Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT


Nánari lýsing á miðhæð:
Forstofa:  Gengið inn í opna forstofu með frönskum keramik flísum á gólfi.  Þaðan eru tvö þrep upp í eldhús og eldhúsborðstofu.
Eldhús:  Vel tækjum búið, tvöfaldur ofn, stórt gashelluborð, innbyggð uppþvottavél, tvöfaldur ísskápur, gufugleypir.  Franskar keramik flísar á gólfi.
Borðstofa: Opið milli eldhúsborðstofu og eldhúss, útgengt út á stóra skjólgóða hellulagða verönd. Stigi upp á efstu hæð gengur upp úr eldhúsholi.  Franskar keramik flísar á gólfi.
Herbergi:  Rúmgott herbergi með stórum lausum skáp, útgengt út á hellulagða verönd, innangengt úr herbergi inná baðherbergi.  Gegnheilt eikarparket á gólfi.
Baðherbergi: Stórt baðherbergi með hlöðnu djúpu baðkari með sturtu, góð hvítlökkðu innrétting, upphengt salerni.  Fallegt grátt marmaragólf og veggir.
Stofur:  Skiptast upp í eina mjög stóra stofu með granít gasarni og tvær minni setustofur beggja vegna við stóru stofuna.  Útgengt út á stórar suðurvestur svalir með útsýni yfir  Laugardalinn.  Gegnheilt eikarparket á gólfi.
Búr:  Inn af eldhúsi er búr/vinnslueldhús, litið herbergi inn af því sem er nýtt sem þvottahús og gestasalerni. Franskar keramik flísar á gólfi.
Gestasalerni: Upphengt salerni, vaskur, franskar keramik flísar á gólfi.

Nánari lýsing á efstu hæð:
Stofa:  Bjart, stórt og opið rými, hægt er að bæta við einu til tveimur herbergjum, útgengt út á stórar suðurvestur svalir með fallegu útsýni yfir Laugardalinn.  Gegnheilt eikarparket á gólfi.  
Svefnherbergi:  Gott herbergi. Gegnheilt eikarparket á gólfi. Var notað sem fataherbergi og efsta hæðin sem hjónasvíta.
Baðherbergi:  Stórt baðherbergi með nuddbaðkari, flísalögðum sturtuklefa, upphengdu salerni, handklæðaofn.  Hvítar flísar á gólfi og upp að miðjum vegg.  Innangegnt úr stofu og svefnherbergi.

Nánari lýsing á kjallaraíbúð:
Stofa: Gengið niður stiga úr forstofu niður í kjallaraíbúð og beint inn í stóra stofu.  Parket á gólfi.
Eldhús: Ágæt innrétting með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi.
Herbergi: Stórt herbergi með skápum á einum vegg. Parket á gólfi.
Baðherbergi:  Stórt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og innréttingu.  Flísar á gólfi.  
Sérinngangur í kjallaraíbúð á austurhlið hússins.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is 
Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1985
29.7 m2
Fasteignanúmer
2019994
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.800.000 kr.
Byggt 1985
29.7 m2
Fasteignanúmer
2019994
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
04
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.800.000 kr.

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Karfavogur 41
Bílskúr
Opið hús:04. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Karfavogur 41
Karfavogur 41
104 Reykjavík
232.7 m2
Einbýlishús
1026
666 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuvegur 17
Skoða eignina Kirkjuvegur 17
Kirkjuvegur 17
625 Ólafsfjörður
76.8 m2
Einbýlishús
312
389 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Kambsvegur 23
Skoða eignina Kambsvegur 23
Kambsvegur 23
104 Reykjavík
93.9 m2
Fjölbýlishús
312
851 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Úlfarsárdalur 0
Úlfarsárdalur 0
113 Reykjavík
420 m2
Einbýlishús
35
Fasteignamat 239.350.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin