Fasteignaleitin
Skráð 21. jan. 2026

Kjarrprýði 2

Nýbygging • EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
281.9 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
330.000.000 kr.
Fermetraverð
1.170.628 kr./m2
Fasteignamat
131.500.000 kr.
Mynd af Bjarný Björg Arnórsdóttir
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2026
Garður
Pallur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2527537
Landnúmer
235758
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
RE/MAX & Bjarný Björg Arnórsdóttir Lgf kynnir:
Glæsilegt og vel staðsett 281,9 fm einbýlishús með fjórum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum við Kjarrprýði 2, 210 Garðabæ. Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 234,4 fm og bílskúrinn 47,5 fm samkvæmt HMS. Góð aðkoma er að húsinu með hita í stétt og rúmgóðum bílastæðum fyrir framan bílskúr. Hátt er til lofts, gluggar eru gólfsíðir og gólfhiti er í húsinu.
Vel hannað og fallegt einbýlishús sem vert er að skoða!

Nánari upplýsingar gefur:
Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 694-2526 / bjarny@remax.is


Eignin einkennist af mikilli lofthæð, fallegum innréttingum, glæsilegri hjónasvítu og rúmgóðum herbergjum. Í eigninni eru fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, sjónvarpsstofa auk gestasnyrtingar. Stórt og glæsilegt eldhús, borðstofa og stofa mynda fallegt alrými þar sem mikil lofthæð, gólfsíðir gluggar og arinn setja glæsilegan svip á rýmið. Innangengt er úr þvottahúsi í rúmgóðan bílskúr. Húsið stendur á stórri 1.019,0 m² lóð. Veröndin er einstaklega falleg og skjólsæl, umvafin gróðri og niðurgrafin að hluta, sem skapar notalegt útisvæði.

** Fjögur svefnherbergi
** Stór hjónasvíta með sérbaðherbergi, baðkari og sturtu
** Glæsilegar innréttingar frá HTH og eldhústæki frá Gaggenau
** Stór og skjólgóð verönd
** Sérsmíðaðar innihurðir
** Gólfsíðir gluggar og mikil lofthæð
** Dúkur í loftinu með hátölurum

Nánari lýsing:
Anddyri
: Komið er inn í rúmgott og bjart anddyri með stórum fataskáp og skóskáp. Fallegar flísar frá Ebson eru á gólfi.
Gestasalerni: Úr anddyrinu er gengið inn á glæsilegt gestasalerni með fallegum flísum, upphengdu salerni, innréttingu og handlaug.
Eldhús, borðstofa og stofa: Hjarta heimilisins er stórt og glæsilegt alrými þar sem mikil lofthæð og stórir gólfsíðir gluggar skapa einstaka birtu og opna rýmistilfinningu. Stórar og glæsilegar rennihurðir eru í stofu og á ganginum. Arinn í stofu setur hlýlegan og fágaðan svip á rýmið.
Eldhúsið er einstaklega vandað með fallegri viðarinnréttingu frá HTH, kvartsteini á borðplötum og hágæða innbyggðum eldhústækjum frá Gaggenau. Gott vinnu- og skápapláss er í eldhúsinu sem tengist borðstofu og stofu á fallegan hátt.
Hjónaherbergið er sérlega stórt og myndar glæsilega hjónasvítu með góðu skápaplássi, sérbaðherbergi og parketi á gólfi. Úr hjónaherberginu er útgengi um svalahurð beint út á pall.
Svefnherbergin eru þrjú og eru þau öll rúmgóð með fataskápum.
Baðherbergin eru tvö með vönduðum HTH-innréttingum. Sérbaðherbergi hjónasvítunnar er rúmgott og glæsilegt með bæði baðkari og sturtu. Blöndunartæki eru frá Axor og í sturtum eru innbyggð blöndunartæki sem gefa rýmunum fallegt yfirbragð.
Sjónvarpsstofa: Rúmgóð sjónvarpsstofa er á herbergisganginum með parketi á gólfi.
Þvottahús: Vel skipulagt þvottahús með góðri innréttingu og miklu skápaplássi. Úr þvottahúsi er innangengt í bílskúr.
Bílskúrinn er 47,5 fm, rúmgóður og flísalagður með góðum skápum og geymsluplássi. Innangengt er úr bílskúr í íbúðarhluta hússins.
Lóð og verönd: Húsið stendur á 1.019,0 m² lóð. Veröndin er fallega staðsett og niðurgrafin að hluta, sem ásamt gróskumiklum gróðri umhverfis hana myndar skjólgott og fallegt útisvæði. Hér skapast notaleg umgjörð fyrir útiveru og samveru yfir sumartímann.

Gólfefni: Á gólfum er niðurlímt eikarparket og flísar frá Ebson.
Innréttingar og fataskápar: Viðarinnréttingar eru frá HTH.
Innihurðir: Sérsmíðaðar með aukinni lofthæð.
Sólpallur: Er úr viðhaldsfríu efni.
Loftræstikerfi: Loftræstikerfi frá Airobot sér um loftskipti í öllu húsinu nema bílskúrnum.

Gólfhiti er í húsinu og góð aðkoma með hita í stétt og rúmgóðum bílastæðum fyrir framan bílskúr.
Einstaklega glæsilegt og vel skipulagt fjölskylduhús þar sem vönduð hönnun, mikil birta, rúmgóð herbergi og fyrsta flokks efnisval fara saman. Eign sem vert er að skoða.

*** Myndir sem sýna eignina með húsgögnum voru búnar til með aðstoð gervigreindar til að gefa hugmynd um hvernig rýmin gætu litið út með húsgögnum ***

Húsið afhendist fullbúið á byggingarstigi 7. Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á (0,3% af brunabótamati), yfirleitt að lokinni lokaúttekt.

Nánari upplýsingar gefur :
Bjarný Björg Arnórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 / bjarny@remax.is  


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.
 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
47.5 m2
Fasteignanúmer
2527537
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 29
1.jpg
Skoða eignina Vorbraut 29
Vorbraut 29
210 Garðabær
269,3 m2
Raðhús
635
850 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Sjávargata 35
Á einni hæð
IMG_7059.JPG
Skoða eignina Sjávargata 35
Sjávargata 35
225 Garðabær
221,2 m2
Einbýlishús
725
858 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturberg 145
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Vesturberg 145
Vesturberg 145
111 Reykjavík
259,1 m2
Einbýlishús
714
552 þ.kr./m2
142.900.000 kr.
Skoða eignina Aftanhæð 3
Á einni hæð
Opið hús:31. okt. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Aftanhæð 3
Aftanhæð 3
210 Garðabær
178,3 m2
Raðhús
513
841 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin