Fasteignaleitin
Skráð 22. maí 2026

Snæland 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
98 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
917.347 kr./m2
Fasteignamat
79.050.000 kr.
Brunabótamat
50.050.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Geymsla 6m2
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2038121
Landnúmer
108823
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar, hús byggt 1973
Raflagnir
Endurnýjað að hluta. Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð
Frárennslislagnir
Upprunalegt, hús byggt 1973
Gluggar / Gler
Tvöfallt gler. Móða sést í 2 gluggum á norðurhlið ásamt glugga í þvottahúsi innan íbúðar.
Þak
Járn á þaki endurnýjað fyrir nokkrum árum.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali & Betri Stofan Fasteignasala kynna afar vel skipulagða, bjarta og mikið endurnýjaða 98fm, 4ja herbergja útsýnisíbúð með rúmgóðum suðursvölum á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi að Snælandi 2, 108 Reykjavík. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni á bílaplani fyrir utan hús. Eignin hefur verið að miklu leiti endurnýjuð á vandlegan og smekklegan máta á síðustu árum þar sem ma. eldhús var endurnýjað með nýrri innréttingu og tækjum árið 2021, ásamt parketi. Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í miðsvæðis í Reykjavíkur þaðan sem örstutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði Víkings og einstakt útivistarsvæði í Fossvogsdalnum.

KLIKKIÐ HÉR TIL AÐ SJÁ MYNDBAND AF EIGNINNI


Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasla í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Húsið steinsteypt, byggt árið 1972 og teiknað af Kjartani Sveinssyni. Í stiganganginum eru 6 íbúðir, 2 á palli. Húsið hefur fengið gott viðhald hin síðustu ár þar sem ma. nýlega er búið að endurnýja þakjárn, rennur og niðurföll. Einnig hefur rafmagstafla fyrir húsið verið endurnýjuð, sameign máluð og sett ný gólfefni á sameignargólf. Í sameign er sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla og vagnageymslu.

Eignin Snæland 2 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 203-8121, birt stærð 98.0 fm, þar af er sérgeymsla á jarðhæð / kjallara ca. 6fm. Geymsla er ekki skráð í skráða fermetratölu eignar í fasteignaskráningu.

Lóðin er fullfrágengin með tyrfðum flötum, trjábeðum og sérmerktum bílastæðum við suðurhlið hússins sem eru þó ekki skráð í eignaskiptayfirlýsingu eignarinnar. Einnig er tvöfalt rafhleðslustæði vestan við húsið sem er sameiginlegt með Snælandi 2-8.

Nánari lýsing:
Inngangur:
 Sameiginlegur, teppalagt stigahús, flísar á andyri og gangi í sameign.
Forstofa: Komið inn rúmgóða forstofu með fatahengi. Tengir saman flest rými íbúðar.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni, bað með sturtu, innbyggð sturta með glerhurð, innrétting með spápum, vask og spegli fyrir ofan vask.
Eldhús: Endurnýjað árið 2021. Innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Hálf opið og í góðri tengingu við stofu. Innbyggður ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, innfellt spanhelluborð í eldhúsbekk og eldhúsvaskur. Aðstaða fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. 
Þvottaherbergi, inn af eldhúsi, með glugga. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur, upphengdur skápur og útdraganleg þvottagrind.
Stofa / borðstofa:, í einu rými, opin, rúmgóð og björt. Fallegir stórir gluggar til suðurs. Útgengt út á rúmgóðar suðursvalir.
Svalir: Afar rúmgóðar og sólríkar suðursvalir.
Herbergjagangur: Innaf forstofu. Gengið í svefnherbegin 3 úr herbergjagangi.
Svefnherbergi I:, Rúmgott með nýlega endurnýjuðum fataskápum. Gott skápapláss.
Svefnherbergi II: Parketlagt. Gott barnaherbergi.
Svefnherbergi III: Parketlagt. Gott barnaherbergi.

Í kjallara hússins eru:
Sér geymsla: Ca 6 fermetra að stærð, flísalagt gólf og með glugga.
Sameiginlegt þvottahús:, Með glugga, steypt gólf og hver með tengi fyrir sína vél.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla:, Málað gólf og útgengið á lóð til norðurs.

Falleg og björt 4ja herbergja íbúð í afar vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Fossvoginum. Leik- og grunnskóli í göngufjarlægð ásamt íþróttasvæði Víkings. Stutt í einstakt útivistarsvæði í Fossvogsdalnum og Elliðaárdalnum. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/10/202045.450.000 kr.53.900.000 kr.92 m2585.869 kr.
05/08/201527.900.000 kr.35.900.000 kr.92 m2390.217 kr.
03/06/200920.950.000 kr.21.150.000 kr.92 m2229.891 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
6 m2
Fasteignanúmer
2038121
Byggingarefni
Steypa

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðaholtsstræti 32
Orkureitur D2 603 ný .jpg
Urriðaholtsstræti 32
210 Garðabær
140.3 m2
Fjölbýlishús
423
840 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 (108)
SouthEastView.jpg
Áshamar 56 (108)
221 Hafnarfjörður
90 m2
Fjölbýlishús
413
817 þ.kr./m2
73.500.000 kr.
Skoða eignina Laugarás 1
Skoða eignina Laugarás 1
Laugarás 1
806 Selfoss
227.3 m2
Fjölbýlishús
413
527 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 7
Bílastæði
Opið hús:30. maí kl 15:30-16:00
Skoða eignina Naustavör 7
Naustavör 7
200 Kópavogur
94.8 m2
Fjölbýlishús
312
980 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin