Fasteignaleitin
Skráð 13. júlí 2026

Dúfnahólar 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
68.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
732.746 kr./m2
Brunabótamat
37.200.000 kr.
Byggt 1974
3. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20485861
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Trausti fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á þriðju hæð við Dúfnahóla 6 í Reykjavík. Birt stærð eignar er 68,1 fm samkvæmt HMS, þar af er 5,4 fm geymsla í kjallara. Magnað útsýni er frá íbúðinni til norðvesturs yfir borgina og til fjalla.
Eignin saman stendur af forstofu, eldhúsi, stofu, einu svefnherbergi, baðherbergi, og svölum. Í kjallara er sér geymsla, sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi, og hjóla- og vagnageymsla.
Íbúðin getur verið laus við kaupsamning.


Nánari lýsing eignar:
Forstofa er með flísar á gólfi og tengir öll rými saman
Eldhús hefur flísar á gólfi og ágæta upprunalega eldhúsinnréttingu
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi og útgengt á svalir
Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi og opinn fataskáp
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Upphengt klósett, handklæðaofn og netta innréttingu.

Íbúðin er að mestu leyti öll upprunanleg en vel skipulögð og býður upp á ýmsa möguleika.
Húsið er í góðu ástandi og hefur það fengið gott viðhald, úti sem inni. Sameign er snyrtileg og er nýbúið að skipta um teppi í sameign, mála og fleira.
Húsið er með tvo innganga, einn að framanverðu og annan að aftanverðu.
Íbúðin er mjög vel staðsett í Hólahverfinu, stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug og verslanir.  Örstutt í náttúruperluna Elliðaárdal.

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Trausti fasteignasala
www.trausti.is

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stefnisvogur 40
Skoða eignina Stefnisvogur 40
Stefnisvogur 40
104 Reykjavík
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
1120 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 46
Skoða eignina Stefnisvogur 46
Stefnisvogur 46
104 Reykjavík
88.2 m2
Fjölbýlishús
211
1121 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarhjalli 63
Efsta hæð
Hlíðarhjalli 63
200 Kópavogur
82.9 m2
Fjölbýlishús
312
783 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Nónhamar 4
Opið hús:23. júlí kl 12:00-12:15
Skoða eignina Nónhamar 4
Nónhamar 4
221 Hafnarfjörður
80 m2
Fjölbýlishús
312
856 þ.kr./m2
68.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin