ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Drekadalur 9C, 260 Reykjanesbær, eign merkt 01-02, birt stærð 63,1 fm. Bókið skoðun strax í dag, sýningar íbúðir tilbúnar til skoðunar. Afhening við kaupsamning!Nýja 2ja herbergja íbúð á
jarðhæð í 13 íbúða, tveggja hæða fjölbýli við Drekadal 9. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, eitt svefnherbergi, ásamt baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu innan íbúðar.
Hægt að kynna sér verkefni byggingaraðila fyrir Dalshverfi 3 á heima síðu félagsins
jotundalur.is Íbúðirnar afhendast fullbúnar að innan sem utan, með innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, loftljósum, rúllugardínum og gólfefnum í öllum rýmum. Svalir og sólpallar snúa til Suðurs. Nánari upplýsingar veitir/veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.
Ásta María Jónasdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 847-5746, tölvupóstur asta@allt.is. Um er að ræða nýjar fullgerðar íbúðir úr forsteyptum einingum frá Einingarverksmiðjunni. Útveggir eru með 7 cm veðurkápu. Hús eru máluð.
Gluggar eru ál-trégluggar,fluttir inn af Gluggatækni.
Bílastæði eru hellulögð. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstígum framan við húsin samkvæmt teikningu.
Innréttingar í eldhúsi frá HTH eða sambærilegum gæðum
Tæki í eldhúsi eru spanhelluborð, bakaraofn og veggháfur frá AEG eða sambærilegt. Íbúðin afhendist með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Baðherbergi er flísalagt að hluta skv skilalýsingu
Handklæðaofn og sturta með flisalögðum sturtubotn.
Yfirfelldar inni-hurðar.
Gólfefni er harðparket frá Harðviðarval á herbergjum og alrýmum. Gólf á baðherbergi,
þvottahúsi og anddyri eru flísalögð með 600*600 mm flísum. Flísar eru frá Birgisson.
Veggir að innan eru hlaðnir úr BAUROC hleðslustein og sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir með tveimur umferðum af plastmálningu.
ATH myndirnar eru úr sýningar íbúð nr 203 í Jötundal 6.Kaupandi greiðir skipulagsgjald af eigninni sem nemur 0,3% af brunabótamati og leggst á eftir að endanlegt brunabótamat hefur fengist á eignina.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.