STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:Í einkasölu fallega og vel skipulagða 100,7 fm 3ja herbergja íbúð á efstu hæð (3.hæð) með útsýni og suðursvölum á frábærum stað í Grafarvogi. Um er að ræða bjarta og einstaklega vel með farna eign, sem hefur verið endurnýjuð að hluta. Eigninni fylgir 21 fm bílskúr með geymslulofti og rafhleðslustöð og þar er ný rafmagnstafla (3ja fasa). Einstaklega góð staðsetning með nálægð við náttúru og alla þjónustu.
Eignin, Frostafold 30, 112, Reykjavík, ásamt öllu sem henni fylgir og fylgja ber að engu undanskildu, þ.m.t. tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi. Fastanúmer eignar: F204-1842.
Ásett verð: 76.700.000 kr.Smelltu hér til að sækja söluyfirlitHelstu kostir:- Sér bílskúr (21fm) með rafhleðslustöð og nýrri rafmagnstöflu
- Björt stofa með útgengi á suðursvalir
- Mjög vel með farin eign
- Góð staðsetning nálægt náttúru og þjónustu
Eignin skiptist í:Forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi, svalir, geymslu innan íbúðar og bílskúr.
Nánari lýsing:Forstofa: Flísalögð með fatahengi.
Eldhús: Falleg og nýleg innrétting með góðu skápaplássi og notalegum borðkrók við glugga, parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð með útgengi á suðursvalir, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum skápum og parketi.
Barnaherbergi: Rúmgott barnaherbergi með parketi.
Baðherbergi: Flísalagt með baðkari og sturtu, handklæðaofn, upphengt salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svalir: Suðursvalir.
Geymsla: Sér geymsla innan íbúðar.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Bílskúr: 21fm bílskúr í lengju á móti húsinu með rafhleðslustöð, geymslulofti og 3ja fasa rafmagni.
Endurbætur og viðhald:- Eldhús og baðherbergi endurnýjað árið 2020.
- Nýtt parket og flísar árið 2020.
- Vatnslagnir hreinsaðar og fóðraðar árið 2025.
- Rafhleðslustöð og ný rafmagnstafla í bílskúr.
- Þak á bílskúr endurbætt að hluta árið 2023.
- Húsið málað að utan árið 2024.
Staðsetning:Eignin er á vinsælum og fjölskylduvænum stað í Grafarvogi, með stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Nálægð við fallega náttúru, s.s. Gufunes, voginn, Geldinganes og Korpu, skapar góð tækifæri til útivistar og hreyfingar.
Nánari upplýsingar veita:Hallveig Jónsdóttir, Nemi í löggildingu, í síma 699-0496, netfang
hallveig@stofnfasteignasala.isBenedikt Ólafsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 661-7788, netfang
bo@stofnfasteignasala.isVið hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.