CROISETTE kynnir í einkasölu mikið endurnýjað, vel skipulagt 222 fm endaraðhús við Reyðarkvísl 11 í Árbænum. Þetta er frábær eign fyrir barnmarga fjölskyldu en húsið er vel staðsett nálægt grunnskóla og leikskóla, Elliðaárdalurinn í göngufæri, gatan barnvæn og róleg. Eignin er á tveimur hæðum, tvö baðherbergi, fimm svefnherbergi, stór bílskúr, austurpallur úr eldhúsi fyrir morgunkaffið og garður í vestur fyrir kvöldgrillið. Eignin hefur verið tekin mikið í gegn og þar má nefna nýtt eldhús, ný baðherbergi og nýtt lagnakerfi ásamt gólfhita á neðri hæð. Mikil lofthæð á efri hæð. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.isSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EFRI HÆÐ Í 3-D
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA NEÐRI HÆÐ Í 3-DNánari lýsing neðri hæð:Forstofa/hol: Forstofan er flísalögð og opnast í hol með opnum fataskáp. Harðparket tekur við af flísunum í forstofu.
Stofa: Opin og björt stofa með útgengi út á hellulagða stétt í garðinum sem er í góðu skjóli en mjög sólríkt frá ca hádegi. Eldhús og stofa mynda stórt opið rými. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Opið og bjart eldhús með hvítri HTH innréttingu með útdraganlegum skúffum undir borðum, stórum skápum með mjög góðu skápaplássi, tveir AEG ofnar, innbyggður vínkælir, hvítur dekton steinn í eldhúsborði og eyju. Harðparket á gólfi. Útgengt út úr eldhúsi á austurpall með stórum matjurtakössum.
Gestasalerni: Gott gestasalerni sem er nýlega búið að endunýja. Upphengt salerni, sturta, flísar á gólfi og veggjum, handklæðaofn.
Þvottahús: Gott þvottahús með hvítri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, gott skápapláss, handklæðaofn. Flísar á golfi.
Frá neðri hæð liggur teppalagður stigi með miðpalli upp á efri hæð í opnu, björtu stigahúsi.Nánari lýsing efri hæð:Hjónaherbergi: Gott herbergi með stórum skápum, mikil lofthæð. Harðparket á gólfum.
Barnaherbergi I: Arinstofa sem var lokuð af og breytt í herbergi. Lítið mál að breyta til baka. útgengt út á vestursvalir. Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi II: Gott herbergi með skáp, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi III: Gott herbergi með skáp, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi IV: Gott herbergi með skáp, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Hægt að gang inn í baðherbergið bæði frá hjónaherbergi og gangi. "Walk in" sturta, upphengt salerni, góð HTH innrétting með stórum spegli fyrir ofan borðskápa, flísar á gólfi og veggjum. handklæðaofn.
Við húsið er 38 fm bílskúr með heitu og köldu vatni.
Framkvæmdir 2023 upplýsingar seljanda:Skipt um neysluvatnslagnir og sett upp varmaskipti, uppfærð lagnagrind í þvottahúsi. Ný eldhúsinnrétting er frá HTH - tæki frá AEG og Siemens (innbyggður ísskápur og frystir). Hvít sprautulökkuð og svört eik. Bæði baðherbergin gerð upp. Blöndunartæki, handklæðaofnar og salerni eru frá Tengi ehf. Gólfhiti á allri neðri hæð (þráðlaus stýring frá Danfoss) og á baðherbergi uppi. Gólfefni frá Harðviðarval. Skipt um alla ofna á efri hæð. Sett LED ljós í loft á efri hæð. Skipt um gler í forstofu.Tengingar (vatn og rafmagn) tilbúnar fyrir pott úti, þ.e. búið að draga rör út úr húsinu og lagnagrind gerir ráð fyrir potti. Fráveitulagnir út í götu voru myndaðar og voru í góðu lagi.
Nánari upplýsingar veita: Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is
Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.