Fasteignaleitin
Skráð 15. mars 2025

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
175 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
92.800.000 kr.
Fermetraverð
530.286 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
107140326
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir og möguleiki á þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR - FRÁBÆR STAÐSETNING*

Glæsilegar og vel hannaðar nýjar 4ra herb. íbúðir á Las Colinas golfsvæðinu, flestar með einstöku útsýni  yfir golfvöllinn og til sjávar. Um er að ræða tvær þriggja hæða blokkir sem snúa í suður á einum besta staðnum á Las Colinas svæðinu. Sér sundlaugargarður með góðri sameiginlegri aðstöðu, sér stæði í bílakjallara og geymsla. 
Rúmgóðar íbúðir,   þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, gestasnyrting, góð stofa, opið eldhús með vandaðri innréttingu. Góðar svalir með frábæru útsýni. Möguleiki á sér garði eða þakverönd.
Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.

Lengi hefur verið beðið eftir íbúðum á þessum stað og þær eiga eftir að seljast hratt.
Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.  adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495. 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034 615 112 869,

Lýsing:

Íbúðum á neðstu hæð fylgir sér garður. Íbúðir á miðhæð eru með góðum svölum út frá stofu og íbúðir á efstuhæð, penthouse, eru með stórum svölum og sér þaksvölum. Frábært útsýni yfir fallega gróið umhverfi, golfvöllinn og til sjávar úr flestum íbúðunum.

Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður.  Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Dehesa de Campoamor ströndina, þar sem eigendur eigna á Las Colinas hafa aðgang að einka strandklúbb.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum.  Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta. 

Loftkæling/hitun fylgir.
Auk þess rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél.
Góður kaupauki fylgir með, hafið samband og kynnið ykkur málið.

Margir frábærir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.  La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.

Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð með sér garði, á miðhæð með stórum svölum og efstu hæð með svölum og stórum sér þaksvölum.

Gengi 1 Evra=145ISK.
Íbúðir með 3 svefn. + 2 baðh. + gestasnyrting. Verð frá 640.000 evrur (ISK 92.800.000ISK) + kostn. við kaupin.
Íbúðin 133 fm
verönd  42 fm
Samtals 175 sérafnotafermetrar ásamt sér stæði í bílakjallara og geymslu.   

Einnig eru á sama stað í boði íbúðir með 2 svefnh. + 2 baðh. 
Verð frá 395.000 Evrum (ISK 57.200.000) + kostn. við kaupin. UPPSELT

Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
107140326
Fasteignanúmer
107140326

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skólavörðustígur 26A
Skólavörðustígur 26A
101 Reykjavík
94.2 m2
Einbýlishús
322
839 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Skoða eignina Óðinsgata 2
Skoða eignina Óðinsgata 2
Óðinsgata 2
101 Reykjavík
130.1 m2
Atvinnuhúsn.
431
807 þ.kr./m2
105.000.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 66
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 66
Naustavör 66
200 Kópavogur
105.9 m2
Fjölbýlishús
312
1227 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 66
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 66
Naustavör 66
200 Kópavogur
142.9 m2
Fjölbýlishús
413
1049 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin