Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Falleg og vel skipulögð 4 herbergja eign á besta stað í afar fjölskylduvænu hverfi í Kópavogi. Stutt er í alla þjónustu eins og matvöruverslanir, skóla, leikskóla og sundlaug. Íþróttamiðstöðin Kórinn og náttúruperlurnar Elliðavatn, Heiðmörk og Guðmundarlundur eru í göngufjarlægð.
Íbúðin telur 115,4 fm og er með sérinngangi af svölum á 2. hæð í lyftuhúsi. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni með fataskápum. Eldhús og stofa í opnu rými með útgengi frá stofu á suðursvalir. Þvottahús innan íbúðar og sér geymsla er í sameign sem telur 9,0 fm. Eigninni fylgir einnig sér stæði í bílakjallara og grunnkerfi fyrir rafhleðslu hefur verið komið fyrir í honum en tvö hleðslustæði eru á sameiginlegu bílastæði fyrir utan hús.
✅
3 Svefnherbergi.✅
Stæði í bílakjallara.✅
Þvottahús innan íbúðar.✅
Hér geturu séð eignina í 3DBókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is
Nánari lýsing:Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Er opið við stofu. Eldhúsinnrétting frá GKS, efri og neðri skápar á einum vegg, eyja með span helluborði, bakarofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
Stofa og borðstofa: Er í opnu alrými með eldhúsi, rúmgóð stofa með útgengi á góðar svalir sem snúa í suður.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Innrétting með handlaug. Flísar á gólfi og veggjum, baðkar með sturtuaðstöðu, salerni, handklæðaofn.
Þvottahús er innan íbúðar. Flísar á gólfi, innrétting.
Sérgeymsla (9,0 m) í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Sérbílastæði í lokuðum bílakjallara.
Eignin hefur fengið gott viðhald:2020: Ný eldhúsinnrétting frá GKS, Harðparket lagt á öll gólf fyrir utan votrými, Fataskápar, hurðar og eldhúsinnréttingar eru frá GKS.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma
858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma
899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.