Fasteignaleitin
Skráð 10. mars 2026

Sílatjörn 13

EinbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
211.2 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
520.360 kr./m2
Brunabótamat
113.600.000 kr.
Byggt 1990
Pallur
Á einni hæð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
21870732
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Margir inngangar

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna einstaklega fallegt og fjölskylduvænt einbýlishús í hjarta Selfoss - stór bílskúr og sólríkur garður og verönd.
Um er að ræða einbýlishús byggt árið 1990 á einni hæð, húsið er skráð 211,2 fm. skv. fasteignaskrá HMS en þar af er rúmgóður bílskúrinn 43,2 fm.
Nánari lýsing;
Forstofa er rúmgóð, flísalögð með góðu fatahengi og skóhillu.
Inn af forstofunni er baðherbergi með sturtu, salerni og handlaug annarsvegar og rúmgott herbergi hinsvegar.
Komið er inn í opið hol sem tengir eldhús, stofu og svefnherbergisálmu.
Eldhúsið er rúmgott og vel skipulagt með eldri innréttingu með góðu geymsluplássi, nægu bekkplássi og góðum borðkrók, það er flísalagt með gólfhita.
Inn af eldhúsinu er flísalagt þvottahús, þaðan er einnig hurð út í garð.
Stofan er rúmgóð og björt með gluggum á tvo vegu og hurð út á stóran og skjólsælan timburpall sem snýr vel við sólu.
Holið opnast áfram inn í svefnherbergisgang þar sem eru 3 ágæt barnaherbergi og rúmgott hjónaherbergi með nýlegum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með gólfhita, baðkari, góðri innréttingu, handklæðaofni og glugga með opnanlegu fagi. 
Húsið er smeklega innréttað með gegnheilu parketi og hlýlegu yfirbragði.
Bílskúrinn er tvöfaldur, 53,2 fm. með góðum gluggum á tvo vegu og hurð á bakhlið sem opnast inn í garðinn. Rýminu hefur verið skipt upp þannig að í dag er þar rúmgott hobbý-herbergi með parketi og sjónvarpsaðstöðu, geymslurými og jafnramt möguleika á að setja bíl inn. Auðvelt er að taka veggi herbergisins niður ef vill.
Mjög góð aðkoma er að húsinu en pláss er fyrir  3-4 bíla fyrir framan húsið. Garðurinn er fallegur og gróinn.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, þak var yfirfarið og málað 2024.
Þetta er einstaklega vel staðsett hús þar sem Sunnulækjaskóli er í 2ja mínútna göngufjarlægð, íþróttahöll í næsta nágrenni og aðeins 10 mínutna gangur í fallegan og líflega miðbæ Selfoss.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignsala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Esja fasteignasala
www.esjafasteignasala.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ljónastígur 2
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Ljónastígur 2
Ljónastígur 2
845 Flúðir
201.3 m2
Einbýlishús
523
457 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Skoða eignina Fagramýri 9
Á einni hæð
Skoða eignina Fagramýri 9
Fagramýri 9
800 Selfoss
85.4 m2
Raðhús
413
737 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Dvergahraun 28
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Dvergahraun 28
Dvergahraun 28
805 Selfoss
221.1 m2
Sumarhús
724
678 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Lágseyla 12
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Lágseyla 12
Lágseyla 12
260 Reykjanesbær
228.3 m2
Einbýlishús
524
492 þ.kr./m2
112.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin