Fasteignaleitin
Skráð 28. sept. 2026

Bjarmaland 9

RaðhúsSuðurland/Selfoss-800
153.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
93.900.000 kr.
Fermetraverð
610.533 kr./m2
Brunabótamat
93.300.000 kr.
Byggt 2022
Pallur
Heitur pottur
Fasteignanúmer
25131015
Húsgerð
Raðhús

Fasteignasalan Heimaland ehf. kynnir Nýlegt, rúmgott parhús með stórum skjólsælum sólpalli og heitum potti að Bjarmaland 9, 800 Selfoss. Hitastillir í öllum herbergjum. Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, herbergisgang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og þaðan gengið inn í bílskúrinn.  Birt stærð 153.8 fm. sem skiptist í 118,9fm íbúðarými og 34,9 fm bílskúr.  Þar sem um eignalóð er að ræða eru fasteignagjöldin lægri,

Nánari upplýsingar veitir Guðný Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8216610, tölvupóstur gudny@heimaland.is.


Forstofan er rúmgóð með stórum fataskápum.
Stofa/borðstofan eru samliggjandi með stórum gluggum á tvo vegu.
Eldhúsið er með hvítri málaðri innréttingu, span helluborði, innbyggðum ískáp og uppþvottavél. Borðskápur fyrir brauðrist og önnur heimilistæki. vaskur við glugga og sæti við skenk. 
Herbergisgangurinn er breiður með inngöngum í herbergin, þvottaherbergið og baðherbergið.
Svefnherbergin eru þrjú rúmgóð, með fataskápum. 
Baðherbergið er stórt, flísalagt upp í loft með ljósum stórum flísum. Rúmgóðum innagengnum sturtuklefa, vaski ofan í plássgóða innréttingu og útgang út í garðinn. 
Þvottaherbergið er stórt með glugga, skolvaski, rúmgóðri innréttingu með sæti fyrir vélarnar í vinnuhæð og niðurfellanlegu borði til frágangs á þvotti.
Innréttingar, gólfefni og innihurðar: Eldhúsinnrétting, baðinnrétting, þvottaherbergisinnrétting og fataskápar eru hvitmálaðir. Ljóst fljótandi parket á öllum gólfum nema stórar ljósar flísar á forstofu, baðherbergi og þvottaherbergi. Innihurðarnar eru hvíta, sléttar yfirfelldar.

Bílskúrinn er með gluggum og inngangshurð utan frá ásam inngangi inn í íbúðina í gegn um þvottaherbergið. Stýring fyrir heita pottinn í bílskúrnum.
Húsið er með dökk grárri  litaðri báru að utan hvítmálaðir gluggar og þakkanntur. Hvítri báru á þaki.
Lóðin er stór eignalóð.  Frágengin með grasflötum. Viðarpalli með háum skjólveggjum og heitum potti. Hellulögn við og að innganginum og möl íinnkeyrslunni. Yfirbyggt þrefalt sorpskýli.

Nánari upplýsingar veitir Guðný Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8216610, tölvupóstur gudny@heimaland.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Heimaland ehf.
http://heimaland.is/

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina DALAHRAUN 28
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina DALAHRAUN 28
Dalahraun 28
810 Hveragerði
166,7 m2
Raðhús
514
629 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16
Bílskúr
Efsta hæð
Opið hús:24. okt. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Hnjúkamói 16
Hnjúkamói 16
815 Þorlákshöfn
157 m2
Fjölbýlishús
413
700 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 15
Bílastæði
Urriðaholtsstræti 15
210 Garðabær
141,3 m2
Fjölbýlishús
323
1075 þ.kr./m2
151.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16 (303)
Opið hús:24. okt. kl 13:00-13:30
Hnjúkamói 16 (303)
815 Þorlákshöfn
50,9 m2
Fjölbýlishús
211
882 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin