Brimnesbraut 25 - Snyrtileg 5 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum á Dalvík - Stærð 138,9 m².
Upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson - s. 888-6661 - siggithrastar@kaupa.isEignin skiptist með eftirfarandi hætti:Neðri hæð: Forstofa, eldhús, stofa, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og búr/geymsla.
Efri hæð: Þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol og baðherbergi.
Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús er með ljósri innréttingu með stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp og flísum á milli skápa. Mjög góður borðkrókur/borðstofa er innaf eldhúsi. Gengið er útúr eldhúsi út í garð. Harðparket er á gólfi.
Stofa er mjög rúmgóð, þar er harðparket á gólfi.
Svefnherbergi eru fjögur, eitt á neðri hæð, en þrjú eru á efri hæð, harðparket er á gólfi og fataskápur í þremur þeirra.
Sjónvarpshol er á efri hæð og þar er harðparket gólfi.
Baðherbergi á neðri hæð er með upphengdu wc, walk-in sturtu og innréttingu undir vask. Flísar eru á gólfi og veggjum
Baðherbergi á efri hæð er með ljósri innréttingu undir vask, upphengdu wc, hornbaðkari og handklæðaofni. Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús er mjög rúmgott, með góðri innréttingu, opnanlegum glugga. Flísar eru á gólfi.
Annað:
- Gólfhiti er undir flísum í forstofu, þvottahúsi og baðherbergjum.
- Heitur pottur er á verönd.
- Efri hæð var standsett um 2018.
- Góð geymslurými eru undir súð á efri hæð sem og undir stiga.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.