Trausti fasteignasala og Mirabela Aurelia Blaga löggiltur fasteignasali kynnir: Glæsilega 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með svölum til vesturs í fallegu fjölbýlishúsi við Hafnarbraut 14C í Kópavogi. Skráð stærð eignarinnar er 92,5 fm, þar af 4,9 fm geymsla innan íbúðar, sem í dag er nýtt sem skrifstofa. Eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu og lyfta gengur alla leið niður í bílakjallara. Fallegar og samræmdar innréttingar eru í eigninni, með Durastone akrílsteini á borðplötum, auk þess sem gólfefni eru plankaharðparket og flísar.
Milli byggingarinnar og strandarinnar við Fossvog er fallegt grænt útivistarsvæði. Göngu- og hjólastígar liggja hjá eigninni og tengjast meðal annars nýrri göngu- og borgarlínubrú milli Kópavogs og Reykjavíkur, sem er í næsta nágrenni.Allar nánari upplýsingar veitir Mirabela Aurelia Blaga Löggiltur fasteignasali, í síma 699-0911, tölvupóstur mirabela@trausti.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: komið er inn í forstofu með rúmgóðum fataskápum og fatahengi.
Stofa: stofan er rúmgóð og björt og rúmar einnig borðstofu. Harðparket er á gólfi og frá stofu er gengið út á vestursvalir.
Eldhús: eldhúsið er vel útbúið með fallegri sérsmíðaðri innréttingu frá Voke III. Gott skápapláss, innbyggður ísskápur og uppþvottavél og span helluborð með háf yfir. Ofninn er í vinnuhæð.
Baðherbergi: Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta. Stór sturta með glerskilrúmi og innrétting með stein á borði. Salerni er upphengt og handklæðaofn.
Þvottaherbergi: innaf baðherbergi er þvottaherbergi.
Svefnherbergi: herbergin eru tvö, bæði rúmgóð með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum sem ná uppí loft.
Geymsla: geymsla eignarinnar er innaf eldhúsi.
Sameign: í sameign hússins er hjóla og vagnageymsla og eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu.
Niðurlag: Þetta er eftirsótt og vinsæl staðsetning þar sem allt er til staðar í hverfinu: Spennandi hjóla-, hlaupa- og göngustígar við sjávarsíðuna, góðar samgönguleiðir auk þess sem ný brú frá Kársnesi yfir í miðbæ Reykjavíkur er fyrirhuguð. Grunnskóli og leikskólar eru í göngufjarlægð. Svæðið í heild mun einkennast af nýjum íbúðum í bland við atvinnubyggð. Bryggjusvæðið verður endurnýjað og gagnger uppbygging mun eiga sér stað í hverfinu sem er staðsett á einum fallegasta og gróðursælasta útsýnisstað á höfuðborgarsvæðinu.
Allar nánari upplýsingar veitir Mirabela Aurelia Blaga Löggiltur fasteignasali, í síma 699-0911, tölvupóstur mirabela@trausti.is.