Fasteignaleitin
Skráð 27. feb. 2026

Snorrabraut 35

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
95.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
67.900.000 kr.
Fermetraverð
710.995 kr./m2
Fasteignamat
74.450.000 kr.
Brunabótamat
49.900.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1946
2. hæð af 3
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2010390
Landnúmer
102982
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Raflagnir
Öryggi í töflu í sameign hafa verið endurnýjuð, ekki vitað hvenær eða hvað hefur verið gert í íbúð.
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta með Snorrabraut 35A. Annað ekki vitað.
Gluggar / Gler
Skipt um glugga 2013 þar sem þurfti og hljóðdempandi gler götumegin. Samhliða var húsið endursteinað og byggðar svalir.
Þak
Þakjárn og þakkantur endurnýjaður 2009.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
SA-svalir.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. íbúð á 2. hæð að Snorrabraut 35 í Reykjavík -auglýst undir fasteignamati. Í kjallara fylgir 11 m² herbergi í útleigu með eldunaraðstöðu sem skilar í dag 85.000 kr. á mánuði, kjörið fyrir kaupendur sem vilja létta á greiðslubyrði (sameiginlegt salerni og sturta fylgja í sameign). Einnig er herbergi húsfélags í útleigu og þar koma einnig beinar tekjur inn í framkvæmdasjóð húsfélags. Íbúðin sjálf er björt með gluggum bæði út í garð og út að Snorrabraut, og út frá svefnherbergi eru rúmgóðar suðaustur-svalir. Húsið er steinsteypt, hefur verið endursteinað og þakjárn endurnýjað, svo viðhaldssagan er í góðu lagi. Staðsetningin er í hjarta miðbæjarins þar sem allt er til alls – gengt Sundhöll Reykjavíkur og í göngufæri við leik- og grunnskóla.  

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofuhol, tvær stofur, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, stúdíórými og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 95,5 m2.



**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax
Nánari lýsing:
Forstofa 
er inn af mjög rúmgóðum teppalögðum stigagangi. Innan íbúðar er komið inn á stórt parketlagt hol. Innskot er fyrir yfirhafnir.
Herbergi er mjög stórt og með innfelldum viðarfataskápum. Parket á gólfi. Útgengi er út á steyptar SA-svalir.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi með op á milli, en hefur verið lokað með léttum vegg og er annað stofurýmið nýtt sem herbergi í dag. Hægt er að opna að nýju. Parket á gólfi. 
Eldhús er með retro innréttingu á tveimur veggjum. Milli efri og neðri skápa eru flísar, sem og á gólfi. Ofn með helluborði og vifta fyrir ofan. Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. 
Baðherbergi er með hvítri innréttingu. Veggfestur spegill með ljósi. Baðkar með sturtu. 
Geymsla/Herbergi í útleigu og er 10,7 m2. Gluggi með opnanlegu fagi. Innrétting með vaski á einum vegg. 
Geymsla er sér, staðsett í kjallara. Hún er 4,4 m2.
Þvottahús er einstaklega rúmgott, staðsett í sameign í kjallara. Hver með sínar vélar. Þvottasnúrur og skolvaskur. Í þvottahúsi er einnig sturtuklefi.
Salerni í sameign fyrir útleiguherbergin í kjallara.
Auka herbergi í sameign er í eigu allra. Það herbergi er í útleigu og fara tekjur þess inn í sjóð húsfélags.
Garður er í porti aftan við hús. Grasflötur, malarplan og trjágróður. Ekið inn frá Grettisgötu.
Hjólageymsla er í læstri geymslu úti í garði (undir svölum 1. hæðar).
Áætlað fasteignamat árið 2027: 75.100.000 kr.


-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Barónsstígur 51
Baldur fasteignasali - Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali
Barónsstígur 51
101 Reykjavík
86.4 m2
Fjölbýlishús
311
844 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Óðinsgata 21
Skoða eignina Óðinsgata 21
Óðinsgata 21
101 Reykjavík
100.1 m2
Hæð
422
889 þ.kr./m2
89.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (124)
Hleðslustöð
Opið hús:12. sept. kl 13:00-13:30
Leifsgata24_aðalmynd.png
Skoða eignina Laugaborg (124)
Laugaborg (124)
105 Reykjavík
81.5 m2
Fjölbýlishús
312
975 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0229
Hleðslustöð
Opið hús:12. sept. kl 13:00-13:30
328_Kitchen1.jpg
Skoða eignina Laugaborg 0229
Laugaborg 0229
105 Reykjavík
108.1 m2
Fjölbýlishús
312
989 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin