Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna:
Virkilega vandaða og einstaka 291,3 fm. 8 herbergja penthouse búð á tveimur efstu hæðum, þ.e. á 6. og 7. hæð merkt 0602 og 2 bílastæði í bílakjallara við Kórsalir 1, 201 Kópavogi.
.: Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða með tölvupósti á netfangið maggi@remax.is // Sjón er sögu ríkari -
- Seljandi skoðar skipti á einbýlishúsi :.
Stórar sólsælar þaksvalir með svalalokum ásamt heitum potti, búið er að klæða allt að innan með fallegu timbri og setja lýsingu, ásamt gólfhita. Stækkar eignina um ca 40 fm.
Tvö bílastæði í bílakjallara ásamt hleðslustöð, fimm svefnherbergi, þar af ein hjónasvíta, þrjár stofur, þrjú baðherbergi, sér þvottahús, fjórar svalir og þar af eru stórar yfirbyggðar suður svalir með gólfhita ásamt svalalokun, heitum potti og einstaklega miklu og flottu útsýni.
Allar innréttingar eru að mestu sérsmíði, háar og vandaðar hurðir í allri íbúðinni. Á gólfunum er gegnheilt parket og fallegar flísar. Innfelld led ljós í lofti. Innfelld Vola tæki á baðherbergjum. Hátt er til lofts víða í íbúðinni.
Íbúðin var öll hönnuð að innan árið 2001 af Pétri Hafsteini Birgissyni innanhúsarkitekt.
Einstaklega flott útsýni frá íbúðinni yfir borgina, til fjalla og víðar. Íbúðin er í húsi sem er á einum hæðsta punkti Kópavogs og útsýnið úr íbúðinni eins og það gerist best.
// 5 Svefnherbergi
// 3 Stofur
// 4 Svalir - Svalalokun og heitur pottur
// Nýtt Eldhús frá Haf Studio
// 2 Bílastæði í bílakjallara
// Aukin lofthæð
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu á 6. hæð með flísum og parketi á gólfi. Mikið og gott skápapláss. Tvö mjög rúmgóð svefnherbergi þar á móti. Þvottahús þar á móti með innréttingu og flísum á gólfi.
Eldhús nýlega endurnýjað með innréttingu frá Haf Studio og Taj Mahak Steinn frá Steinlausnum, eldhústæki frá SMEG, vaskur með matarkvörn, gott vinnu- og borðpláss, eyju, ofnum í vinnuhæð, stæði fyrir tvöföldum ísskáp, helluborði ásamt góðum borðkrók með fallegum hornbekk.
Stór og rúmgóð stofa með útgengi út á á suður svalir.
Baðherbergi I er með flísum á bæði gólfi og á veggjum. Baðkar og sér sturta, innfelld tæki og góð innrétting með tvær handlaugar, stóran spegil og gott skápapláss. Upphengt salerni og handklæðaskápa.
Þar við hlið er þriðja svefnherbergið og líka fjórða svefnherbergið sem er stór og glæsileg hjónasvíta með útgengi út á sér svalir, sér fataherbergi og sér baðherbergi með sturtu með innfelldum tækjum, upphengdu salerni og handlaug með innréttingu og spegli.
Stór og góð borðstofa/sjónvarpsstofa með hátt til lofts, innbyggðar hillur og steyptur flottur parketlagður stigi er upp á efri hæð/ 7. hæð.
Á efri hæð er mjög rúmgóð og björt arinnstofa með sérsmíðum bar og útgengi út á stórar yfirbyggðar suður svalir með gólfhita og glæsilegt útsýni og heitum potti. Svalir klæddar, settur gólfhiti og flísalagðar 2026. Auk þess eru minni svalir sem snúa í vestur. Á hæðinni er líka fimmta svefnherbergið. Þar á móti er svo þriðja baðherbergið, sturta með innbyggðum tækjum, upphengt salerni, handlaug og baðskápur.
Frábær, vönduð og stór útsýnisíbúð á þessum eftirsótta og fjölskylduvæna stað í Salahverfi Kópavogs þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla þjónustu.
Allar nánari upplýsingar gefur: Magnús Már Lúðvíksson í síma 699-2010 eða maggi@remax.is, löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-