Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir í einkasölu: Holtsvegur 31, 210 Garðabær eignin telur 93,9 fm tveggja herbergja íbúð á 2. hæð um er að ræða virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða íbúð með skjól góðum svölum í góðu fjölbýlishúsi. Útsýni er yfir að Urriðakotsvatni og Setbergi.Skipulag telur: Forstofu, svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi, ásamt alrými með eldhúsi, borðstofu, stofu og útgengi á rúmgóðar svalir með útsýni að Setberginu.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.isSmelltu á link til að skoða íbúðina í 3-DNánari lýsing:Forstofa með innfelldum viðarskáp. Parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt með fallegu útsýni yfir vatnið og til sjávar til vesturs. Parket á gólfi.
Eldhús er með eikar- og hvítri háglans innréttingu með ljúflokunum. Innrétting frá HTH og eldhústæki frá AEG. Parket á gólfi. Útgengi út á suðvestursvalir.
Baðherbergi er með walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og HTH innréttingu við handlaug. Flísar í hólf og gólf. Blöndunartæki frá Tengi. Baðherbergi var flísalagt 2026, tekið út baðkar og komið fyrir sturt.
Þvottahús er inn af baðherbergi. Aðstaða og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Stálvaskur. Ljósar flísar á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott, með góðum skápum og parketi á gólfi.
Geymsla er sér í sameign á 2. hæð og er 13,5 m2.
Bílageymsla er á 1. hæð. Sérmerkt bílastæði. Þvottaaðstaða. Bílastæðin úti eru upphituð.
Ath. húsið er fimm hæða og með aðeins níu íbúðum.
Stutt er í fallegar gönguleiðir í Heiðmörk, verslanir og aðra þjónustu. Þrír golfvellir eru í næsta nágrenni.Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma
858-7410 eða gj@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.