Fasteignaleitin
Skráð 22. okt. 2026

Flugumýri 30

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
180.5 m2
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
414.958 kr./m2
Brunabótamat
72.900.000 kr.
Byggt 2003
Sérinng.
Fasteignanúmer
22675821
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir og Anna Sigurðardóttir Löggiltur fasteignasali sími: 898-2017 netfang: anna@aldirfasteignir.is kynna í einkasölu:
 
*** Atvinnuhúsnæði með stúdio íbúð við Flugumýri Mosfellsbæ. ***


Nánari lýsing:  Frábært atvinnuhúsnæði með fullt af skemmtilegum möguleikum á eftirsóttum stað við Flugumýri 30, bil merkt 103. Húsnæðið er skráð 180,5 fm og skiptist í iðnaðarrými á jarðhæð samtals 108 fm, 45,3 fm skrifstofurými á 2 hæð sem er innréttað í dag sem stúdíó íbúð auk þess er 37 fm kaffistofa með öðrum inngangi.  Mikil lofthæð er í aðalrýminu, lítið herbergi með sturtu  og sér gestasnyrting, stór innkeyrsluhurð ásamt gönguhurð, úr salnum er gengið upp í skrifstofurýmið.  Salnum hefur verið skipt upp og er rúmgott herbergi með eldhúsaðstöðu inn af honum með útgengi á útisvæðið á bak við húsið, stigi er úr rýminu upp í kaffistofuna á efri hæðinni sem nýtt hefur verið sem svefnherbergi. Húsið sem er byggt árið 2003 er úr forsteyptum einingum og eru sjö iðnaðarbil í lengjunni. Lóðin sem er afgirt er mjög snyrtilegu með góðu aðgengi og malbikuðum bílastæðum.

Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir Löggiltur fasteignasali sími: 690 898-2017 netfang: anna@aldirfasteignir.is
Sjón er sögu ríkari *** Bókaðu einkaskoðun hér ***


-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Anna Sigurðardóttir lögg.fasteignasali s: 898-2017 eða anna@aldirfasteignir.is




 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Síðumúli 29
Hleðslustöð
Skoða eignina Síðumúli 29
Síðumúli 29
108 Reykjavík
174 m2
Atvinnuhúsn.
1
514 þ.kr./m2
89.500.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 29
Hleðslustöð
Skoða eignina Síðumúli 29
Síðumúli 29
108 Reykjavík
174 m2
Atvinnuhúsn.
1
514 þ.kr./m2
89.500.000 kr.
Skoða eignina Koparslétta 9
Skoða eignina Koparslétta 9
Koparslétta 9
162 Reykjavík
257,6 m2
Atvinnuhúsn.
2
399 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Skoða eignina Koparslétta 9
Skoða eignina Koparslétta 9
Koparslétta 9
162 Reykjavík
129,5 m2
Atvinnuhúsn.
2
401 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin