Vel skipulögð, rúmgóð og mikið endurnýjuð þriggja herbergja 81,1 fm íbúð á annari hæð í góðu húsi í Hafnarfirði. Íbúðin skiptist í eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús, barnaherbergi og hjónaherbergi. Geymsla 4,8 fm í kjallara og merkt bílastæði á bílaplani.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is Nánari lýsing: Komið er inn í hol með fatahengi. Á hægri hönd er gott eldhús með ljósri innréttingu með góðu skápaplássi, ísskápur og uppþvottavél fylgir. Búið er að opna eldhús með opi/glugga inn í stofu og þar setuaðstaða. Góð stofa með útgangi út á suð-austur svalir með fallegu útsýni. Þvottahús er innan íbúðar. Snyrtilegt baðherbergi með baðkari, upphengdu salerni og handklæðaofni. Tvö svefnherbergi og er hjónaherbergið með stórum fataskáp.
Nýlegt parket er á allri íbúðinni nema á baðherbergi sem er flísalagt og þvottaherbergi en þar er dúkur. Merkt stæði á bílastæðaplani, á góðum stað við inngang, gott aðgengi og fjöldi af bílastæðum. Í kjallara er sérgeymsla, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Snyrtilegt hús og sameign. Stutt er í alla þjónustu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.