LIND fasteignasala kynnir bjarta og fallega þriggja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) með útleiguherbergi í sameign og stæði í bílageymslu við Dalsel 17 í Reykjavík. Eignin hefur verið mikið endurbætt, m.a. innihurðir, eldhúsinnrétting og hluti gólfefna. Eignin er upphaflega teiknuð með einu svefnherbergi en aukaherbergi hefur verið bætt við úr hluta eldhúss. Falleg eign í fjölskylduvænu hverfi þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Verslunar- og þjónustukjarninn Mjóddin er í göngufæri.Íbúð 302:Forstofa/hol: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, hvít innrétting, tengi fyrir uppþvottavél, opnanlegur gluggi.
Stofa: Parket á gólfi, útgengi á stórar suðursvalir.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur. Hluti fataskáps nýtist sem geymsla undir súð.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Nýleg innrétting með handlaug, baðkar, sturta, upphengt salerni. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Aukaherbergi í sameign (8 fm): Herbergið er í útleigu.
Sérgeymsla (7,9 fm) í sameign.
Sameiginlegt þvottahús í sameign en tengi fyrir þvottavél er innan íbúðar.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Sérbílastæði er í sameiginlegri bílageymslu.
Lóð er sameiginleg.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Framkvæmdir undafarið að sögn seljenda: 2024 Innrétting undir handlaug á baðherbergi endurnýjuð
2023 Ofnar yfirfarnir og endurnýjaðir eftir þörfum
2023 Stofugluggi endurnýjaður
2022-2023 Hús múrviðgert og málað að utan
2017 Eldhúsinnrétting endurnýjuð
2017 Gólfefni endurnýjuð í eldhúsi og stofu.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. Hús múrviðgert og málað að utan 2024.
Aukaherbergi í kjallara sem er í útleigu, 60.000 á mánuði.
Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2018. Nýtt parket í stofu og eldhúsi 2018.
Upphaflega teiknuð sem tveggja herbergja, herbergi bætt við á kostnað eldhúss.
Upphitaður bílakjallari. Sér húsfélag.
Þak?