Borg fasteignasala ehf. (Einar Pálsson lgf. einar@fastborg.is; 857-8392) kynna tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í fjölbýli með fallegu útsýni og lyftu að Drekagili 28, (íbúð 301) 603 Akureyri. Sameiginlegt þvottarými er á sömu hæð og íbúðin og sér geymsla ásamt sameiginlegri vagna/hjólageymslu á jarðhæð hússins. Svalir eru til suður. Húsið er byggt árið 1993 með alls 22 íbúðum á 8 hæðum samkvæmt þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu. Íbúðin (01 0301) er skráð 64,3 m2 að stærð samkvæmt opinberum skráningum HMS ásamt sér geymslu á jarðhæð hússins.Lýsing eignar:Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi með rennihurðum.
Eldhús er með flísum á gólfi. Eldhúsinnrétting er með efri- og neðri skápum og flísum á milli skápa. Ísskápur og upp.vottavél fylgja með.
Stofan er rúmgóð með fallegu útsýni og útgengi á
svalir til suðurs.
Hjónaherbergi er með parket á gólfi og föstum fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjaþiljum inn í sturtu ásamt sturtugleri, klósetti og ágætis innréttingu. Ofn er inn á baðherbrgi.
Sameiginlegt þvottaherbergi er á hæðinni.
Sér geymsla er á jarðhæð hússins ásamt sameiginlegri vagn- og hjólageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali í síma 857-8392 eða á netfanginu einar@fastborg.is
-Eignin er í einkasölu
-Ljósleiðari er tengdur inn í íbúðinaSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnun.ar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.