Jón Smári Einarsson lgf., s. 8606400 og Fasteignaland kynna einstaklega fallega sumarhúsalóð Langimelur 27, í Hvammsvík í Kjósarhreppi í mynni Hvalfjarðar. Svæðið er frábært útivistarsvæði í einungis 45 mín. fjarlægð frá Reykjavík. Fjölbreytt landslag, fjöll, lækir og fossar að ógleymdri strandlengjunni. Lóðin er 5600 fm að stærð og heimilt byggingarmagn er 3% af lóðarstærð eða um 168 fm.Rafmagn, ljósleiðari og kalt vatn eru við lóðarmörk.
Seljandi hefur greitt Kjósarveitum fyrir heimtaug hitaveitu og greitt 70% tengigjalds. Núna er bráðabirgðahitaveitulögn á svæðinu. Kaupandi greiðir eftirstöðvar, þ.e. 30% kostnaðar tengigjalds til Kjósarveitna þegar þar að kemur.
Árgjald sumarhúsafélgsins er um kr. 25.000 á ári og sér félagið um viðhald vega og rekstur rafmagnshliðs ásamt snjómokstri ef með þarf.
Árgjald fyrir kalt vatn er um kr. 37.000 á ári.
Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið).
Flokkunarstöð á vegum sveitarfélagsins er í Raðahverfi í landi Háls sem er tæpa 2 km. frá sumarhúsasvæðinu.
Sjá staðsetningu lóðarinnar á Google Maps hér.Sjá 3D mynd af svæðinu hér (sjá leiðbeingar um notkun í (i) hnappi).Stutt er í náttúrulegar jarðhitalaugar og veitingar í Hvammsvík.Kaupandi skuldbindur sig til að leigja ekki hús á lóðinni í skammtímaleigu þ.e. í skemmri tíma en þrjá mánuði og er þinglýst kvöð þess efnis.
Nánari upplýsingar veitir:Jón Smári EinarssonLöggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is860-6400
HÉR GÆTI DRAUMAHÚSIÐ RISIÐ – FLÓRGOÐI 150 M² FRÁ TEKTA - Sjá myndir merkar TEKTA
Lóðin býður upp á spennandi möguleika til byggingar og gæti meðal annars hentað vel fyrir Flórgoða 150 m² frá TEKTA – fallegt og nútímalegt einbýlishús með rúmgóðri og fjölskylduvænni hönnun.
Til að auðvelda kaupanda að taka næsta skref fylgir lóðinni sérstakt TEKTA tilboð:
500.000 kr. afsláttur af Flórgoða 150 m² eða öðru TEKTA húsi 120 m² eða stærra, ef kaupandi lóðarinnar ákveður að byggja með TEKTA og gengið er frá samningi um húsið innan 6 mánaða frá kaupum á lóðinni.
TEKTA hús eru forsmíðuð timburhús, framleidd fyrir íslenskar aðstæður og afhent í stórum einingum sem gerir reisningu hússins hraða og skilvirka. Hægt er að aðlaga grunnmynd, útlit og ýmis atriði að þörfum kaupanda og aðstæðum á lóðinni.
Lóð + Flórgoði 150 m² – spennandi tækifæri til að skapa fallegt heimili frá grunni. Nánari upplýsingar um Flórgoða og önnur TEKTA hús má finna á tekta.is.
Flórgoði 150 m² er sýndur sem hugmynd að mögulegri húsgerð á lóðinni. Hús er ekki innifalið í söluverði lóðarinnar. Endanleg hönnun og staðsetning húss er háð skipulagsskilmálum, byggingarleyfi og öðrum viðeigandi samþykktum.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .