Fasteignaleitin
Skráð 17. maí 2026

Gyðufell 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
67.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
46.900.000 kr.
Fermetraverð
696.880 kr./m2
Fasteignamat
45.050.000 kr.
Brunabótamat
36.550.000 kr.
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2052467
Landnúmer
112322
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Ástand óþekkt
Raflagnir
Ástand óþekkt
Frárennslislagnir
Ástand óþekkt
Gluggar / Gler
Ástand óþekkt
Þak
Endurnýjað 2024
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já lokaðar svalir til suðurs
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Á aðalfundi 2025 var samþykkt samhljóða að stofna sérstakan framkvæmdasjóð bílastæða og var stjórn falið að leita tilboða í
endurnýjun á bílaplani fyrir Iðufell 2-4 til að byrja með. Einnig var samþykkt að stjórn afli tilboða í endurnýjun 8 útihurða ásamt
hurðum í sorpgeymslu. Að lokum var stjórn veitt heimild til að leita eftir tilboðum í myndun lagna. Sjá nánar aðalfundargerð
24.03.2025. Málin eru í vinnslu hjá stjórn og munu verða tekin fyrir á næsta húsfundi.
Á aðalfundi 2026 kom fram að það er áætlað að skipta um 8 útihurðir á árinu. Fram kom að stjórn er búin að mynda lagnir og ætlar
að fá fagaðila til að fara yfir myndefnið. Stjórn var veitt heimild til að láta malbika í samræmi við fyrri ákvarðanir. Samþykkt var að
láta fjarlægja dauð tré og runna af lóð. Sjá aðalfundargerð 16.04.2026.
Björt og hlý 2 herbergja íbúð með suðursvalir — Gyðufell 8
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna mjög skemmtilega og bjarta 67,3 fm íbúð í Fellahverfi Reykjavíkur. Hér er um að ræða góða íbúð á 2. hæð í húsi sem hefur fengið gott viðhald undanfarin ár. Stutt er í alla helstu þjónustu, matvörubúðir, grunn- og leikskóla, Fjölbraut í Breiðholti, sundlaug og íþróttamiðstöðvar og Menningarmiðstöðina Gerðuberg.

-  Frábær fyrstu kaup
-  Suðursvalir með svalalokun
-  Nýlegt þak
-  Merkt bílastæði

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is
Íbúðin er skráð 67,3 fm samkvæmt HMS þar af er 4,9 fm geymsla

Nánari lýsing:
Stofa og eldhús: Björt og rúmgóð stofa og eldhús í opnu alrými með parket á gólfi. Eldhúsið er vel skipulagt með hvítum skápum og góðu skápaplássi. Borðstofa og skrifstofuaðstaða er í rýminu. Útgengt á suðursvalir með svalalokun.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi.
Herbergi: Lítið herbergi innaf svefnherberginu — nýtist sem fataherbergi eða bókaherbergi. 
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum með baðkari, handlaug, salerni og góðri innréttingu.
Geymsla: 4,9 fm sérgeymsla fylgir íbúðinni.

Húsið: Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarin ár — nýlega var þakið endurnýjað. Snyrtilegur stigagangur í sameign. Sameiginlegur garður með leiksvæði. Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi, auk hjóla og vagngeymslu. 
Bílastæði: Búið að merkja hverri íbúð 1 stæði en þau eru ekki þinglýst eign.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/05/201822.050.000 kr.25.200.000 kr.67.3 m2374.442 kr.
20/12/200611.020.000 kr.11.700.000 kr.67.3 m2173.848 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðaholtsstræti 32
Orkureitur D2 603 ný .jpg
Urriðaholtsstræti 32
210 Garðabær
140.3 m2
Fjölbýlishús
423
840 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 (108)
SouthEastView.jpg
Áshamar 56 (108)
221 Hafnarfjörður
90 m2
Fjölbýlishús
413
817 þ.kr./m2
73.500.000 kr.
Skoða eignina Laugarás 1
Skoða eignina Laugarás 1
Laugarás 1
806 Selfoss
227.3 m2
Fjölbýlishús
413
527 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 7
Bílastæði
Opið hús:30. maí kl 15:30-16:00
Skoða eignina Naustavör 7
Naustavör 7
200 Kópavogur
94.8 m2
Fjölbýlishús
312
980 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin