Helgafell fasteignasala kynnir til sölu vel staðsettan sumarbústað á sameinaðri 5.580fm. eignarlóð við Norðurnes 45 og Norðurnes 46 í Kjósinni.Eignin er staðsett innst í sumarhúsahverfinu rétt við Svínadalsá á vel gróinni og ræktaðri lóð.
Eigendur hafa getað nýtt sér sumarbústaðinn allan ársins hring. Bústaðurinn er tengdur við hitaveitu.
Falleg lóð sem bíður upp á ýmsa möguleika s.s. að bæta við sumarbústað á lóð nr. 45.
Lýsing á bústaðnum:Fallegur sumarbústaður sem var fyrst byggður 1978 en hefur verið mikið uppfærður og stækkaður.
Búið er að bæta við svefnálmu með tveimur svefnherbergjum við bústaðinn og er það ekki inní fermetratölu bústaðarins.
Rúmgóð
stofa/borðstofa með kamínu og mikilli lofthæð. Áður var svefnloft sem tekið hefur verið niður og lofthæðin nýtt. Gluggi settur á gaflinn til að gefa góða birtu inn í stofuna. Útgengt úr stofu út á svalir.
Opið
eldhús við stofuna með snyrtilegri eldhúsinnréttingu og eldavél.
Tvö svefnherbergi annað mjög rúmgott.
Rúmgott baðherbergi með vask og salernisaðstöðu.
Nýlega var skipt um þak á bústaðnum.Sumarhúsafélagið Norðurnes: 90 þkr fyrir árið nú en er annars ákveðið á aðalfundi hvers árs.
Grenndarstöð er við vegamót Meðalfellsvegar. Rotþró er tæmd á annað hvert ár.
Samkvæmt nýju Aðalskipulagi 2024-2036:
Það má byggja í heild 200m2 á lóðinni, lóðin er 5580m2.
Smáhýsi undir 15m2 teljast ekki með í heildar byggingarmagni.Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - Sími 566 0000Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is