Fasteignaleitin
Opið hús:23. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 21. sept. 2026

Safamýri 46

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
128.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.900.000 kr.
Fermetraverð
576.443 kr./m2
Brunabótamat
59.080.000 kr.
Byggt 1964
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20147895
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á  4. og efstu hæð við Safamýri 46, Reykjavík ásamt bílskúr.  Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá:  Íbúð 107,7 fm og bílskúr 20,5, samtals 128,2 fm. 

Íbúðin telur, rúmgóða stofu, eldhús með góðum borðkrók,  3 svefnherbergi, baðherbergil auk sérgeymslu í kjallara


Nánari lýsing:
Komið er inn parketlagt anddyri eða skála. 
Rúmgóð stofa/borðstofa með stórum gluggum. Dúkalögð. Úr stofu útgengt út á góðar svalir. 
Eldhúsið er rúmgott með hvítri eldri innréttingu.  Bakarofn og helluborð. Flísar á milli efri og neðri skápa. Dúkalagt.
Svefnherbergi íbúðar eru þrjú.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með útgengi á svalir. Eldri fataskápar. Dúkalagt.
Tvö barnaherbergi, bæði parketlögð. Annað þeirra rúmgott.
Baðherbergið var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Flísar á gólfi. Vegghengt salerni. Sturtuklefi og hvít innrétting undir handlaug og speglaskápur fyrir ofan innréttingu. 

Íbúðinni fylgir 20.5 fm bílskúr í lengju. Bílskúrshurð hefur verið endurnýjuð. 

Hér er um að ræða vel skipulagða eign í fjölbýlishúsi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í vinsælu hverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni. Skólar á öllum stigum eru nærri og stutt í íþróttastarf.

Viðhald að utan og í sameign samkvæmt upplýsingum frá húsfélagi og eiganda:
2019 – Viðgerðir á austurhlið. Skipt um alla glugga, múrviðgerðir og blettað. Skipt um svalahurðir.
2020 – Frárennsli lagað og dren yfirfarið. Skipt um lagnir að hluta en aðrar fóðraðar. Brunnar endurnýjaðir.
2022 – Vesturhlið viðgerð. Skipt um alla glugga, múrviðgerðir og blettamálun eftir þörfum.
2022 – Settar upp hleðslustöðvar frá Ísorku í sameign á bílaplani. Gengið frá grunnkerfi fyrir hraðhleðslustöðvar í bílskúrum.

Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is



 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Karlsbraut 20 efri hæð
Bílskúr
Efsta hæð
Karlsbraut 20 efri hæð
620 Dalvík
145.9 m2
Fjölbýlishús
312
264 þ.kr./m2
38.500.000 kr.
Skoða eignina Hulduholt 2b íbúð 105
Bílastæði
Á einni hæð
Hulduholt 2b íbúð 105
603 Akureyri
131 m2
Fjölbýlishús
322
844 þ.kr./m2
110.585.000 kr.
Skoða eignina Hrafnagilsstræti 28 e.h.
Hrafnagilsstræti 28 e.h.
600 Akureyri
113.6 m2
Fjölbýlishús
412
659 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Hulduholt 2a íbúð 103
Bílastæði
Hulduholt 2a íbúð 103
603 Akureyri
140.8 m2
Fjölbýlishús
423
850 þ.kr./m2
119.680.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin