Fasteignaleitin
Skráð 7. júní 2025

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
263 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
192.500.000 kr.
Fermetraverð
731.939 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Pallur
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
108070626
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*NÝTT Í SÖLU* - *GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á COLINAS GOLFVELLINUM*

Glæsileg og vel hönnuð rúmgóð einbýlishús á tveimur hæðum nýkomin í sölu. Aðeins örfá hús í boði.
Stór verönd og garður með einkasundlaug og auk þess þakverönd.
Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
GOTT SKIPULAG,  þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og auk þess gestasnyrting. Rúmgóð stofa, eldhús og borðstofa í björtu opnu rými með góðri tengingu við stóra verönd. Stór sér garður með einkasundlaug, flottu bbq svæði og sólbaðsaðstöðu. Þakverönd með flottu útsýni. 


Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10-15 mín akstur á Campoamor ströndina.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is. 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869.

Nánari lýsing:
Aðal hæð: Rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt opnu eldhúsi. Stór hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi. Gestasnyrting.

Neðri hæð.  Tvö rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi. 
Hægt er að breyta skipulagi á neðri hæð og td. fjölga baðherbergjum og bæta við sameiginlegu fjölskyldurými.

Rafmagnstæki í eldhúsi, þvottavél og air con fylgir.
Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.

Hér er um að ræða glæsilet nýtt einbýlishúsahverfi á Las Colinas, sem margir hafa beðið eftir. 

Bílastæði inni á lokaðri lóð.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Nýtt spa og líkamsræktarstöð, tennis, sameiginlegur sundlaugargarður ofl. Algjör lúxus fyrir vandláta.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Lo Romero.
Ca. 10-15 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Frábær eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Verð 1.395.000 evrur (192.500.000 ISK) + kostn.  gengi 1Evra=138 ISK

AÐEINS ÖRFÁ HÚS Í BOÐI.
Tilbúin ca. 18-20 mán. frá undirritun kaupsamnings.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Bein kaup frá  traustum og öruggum byggingaraðila.

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, air con, golf, þakverönd, útsýni,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
108070626

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langholt 8
Bílskúr
Skoða eignina Langholt 8
Langholt 8
230 Reykjanesbær
269,8 m2
Einbýlishús
827
481 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Núpahraun 26
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Núpahraun 26
Núpahraun 26
815 Þorlákshöfn
253,7 m2
Raðhús
413
354 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsbúð 20
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Holtsbúð 20
Holtsbúð 20
210 Garðabær
255,7 m2
Einbýlishús
614
758 þ.kr./m2
193.900.000 kr.
Skoða eignina Sjávargata 11
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:29. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Sjávargata 11
Sjávargata 11
225 Garðabær
245,7 m2
Einbýlishús
725
686 þ.kr./m2
168.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin