Fasteignaval / Gunnlaugur Hilmarsson kynna: Fallega og vel skipulagða 4ra herbergja 148,5 m2 íbúð, þar af 49,9 m2 bílskúr, á góðum stað við Suðurgötu 96, 220 Hafnarfirði.
Eignin er á fyrstu hæð og býður upp á þrjú góð svefnherbergi, opið miðrými með góðu flæði milli eldhúss og stofu, rúmgóðan bílskúr og fjölskylduvæna staðsetningu.Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp.
Eldhús er bjart með ljósri innréttingu og parketi á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt, með parketi á gólfi og þaðan er útgengt út á svalir. Svalirnar snúa út að grónum garði og þaðan má sjá glitta til sjávar.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott og bjart með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Tvö góð barnaherbergi rúmgóð og björt, með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með ljósri innréttingu, baðkari og sturtuaðstöðu.
Þvottahús er inn af gangi með skolvaski og góðu vinnuborði.
Bílskúr er 49,9 m2, þar af eru 14,3 m2 skráð sem geymsla en í dag er þetta eitt stórt rými. Bílskúrinn er rúmgóður og bjartur með stórri rafknúinni bílskúrshurð ásamt sér inngangi um göngudyr. Auðvelt er að keyra bifreið inn í bílskúrinn og býður hann jafnframt upp á mikið geymslupláss og góða vinnuaðstöðu.
Bílastæði sem fylgja eigninni eru fyrir framan bílskúr og komast um 4 bílar þar fyrir. Einnig er hægt að leggja í sameiginleg stæði framar í götunni.
Garður er sameiginlegur, gróinn og girtur af með trévegg. Húsfélagið greiðir fyrir þjónustu sem sér um umhirðu á garðinum.
Staðsetningin er einstaklega góð í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem leikskóla, skóla, verslanir, sundlaug, veitingastaði, höfnina og fallegar gönguleiðir við sjóinn.
Samþykktar framkvæmdir: Til stendur að skipta um glugga í húsinu, húsfélagið hefur verið að safna fyrir framkvæmdunum sem eru á kostnað seljanda.
Allar upplýsingar veitir Gunnlaugur Hilmarsson, löggildur fasteignasali og viðskiptafræðingur, í síma 777 56 56, gunnlaugur@fasteignaval.is, og á skrifstofu í síma 517 26 00 eða á heimasíðu okkar www.fasteignaval.isKostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi –0,8% af heildarfasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. Kauptilboði.