Fasteignaleitin
Skráð 26. okt. 2026

Krókamýri 70

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
183.6 m2
6 Herb.
Verð
144.900.000 kr.
Fermetraverð
789.216 kr./m2
Fasteignamat
142.700.000 kr.
Brunabótamat
101.950.000 kr.
Byggt 1994
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2217926
Landnúmer
173520
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upphaflegar
Raflagnir
upprunalegar
Frárennslislagnir
upprunalegar, myndað 2024 og sagt í lagi
Gluggar / Gler
endurnýjað að hluta
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita, gólfhiti á baðherbergi á neðri hæð , og sjónvarpsholi
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
útidyrahurð á efri hæð er orðin léleg, klæðning  við útidyrahurð á efri hæð út í garð þarfnast endurnýjunar, raka blettur við hurðina
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir einstakt parhús eftir arkitektinn Vífil Magnússon. Það er sjaldgæft að eignir eftir hann komi á markað og nú gefst tækifæri til að eignast einstaklega skemmtilegt og vel skipulagt sex herbergja parhús.

Húsið er með innbyggðum bílskúr á frábærum stað við rólega botnlangagötu í Krókamýri 70 í Garðabæ.
Eignin býður jafnframt upp á sólríkan pall með steyptum heitum potti og einstaklega fjölskylduvæna staðsetningu þar sem göngustígar liggja að grunnskóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, leiksvæðum og sundlaug án þess að fara þurfi yfir umferðargötu.


Eignin er skráð samkvæmt HMS alls 183,6 fm, þar af er innbyggður bílskúr 42 fm. Bílastæði fyrir þrjá bíla á lóðinni. Gólfflötur eignarinnar er þó meiri en skráðir fermetrar gefa til kynna þar sem þakið er hallandi. 
Eignin ber skýran og auðþekkjanlegan stíl arkitektsins þar sem þríhyrnings, tíglaform og markviss notkun loftglugga setja mikinn svip á hönnunin.

Mikil lofthæð eða 4,60 m og gluggar gera alrýmið sérstaklega bjart og skemmtilegt. Birta og skuggar breyta ásýnd rýmanna yfir daginn.



Nánari lýsing
Efri hæð

Anddyri sem hægt er að loka af frá aðalrými með stórri hurð.
Gestasalerni sem er inn af anddyri er með upphengdu salerni, handlaug úr ryðfríu stáli og flísum á gólfi.
Rúmgott hol með flísum á gólfi og útgengi út á steyptar svalir sem snúa að garði.
Eldhús með eyju, granítborðplötum, helluborði og pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Ofn og uppþvottavél er í vinnuhæð.
Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með mikilli aukinni lofthæð eða 4,60 m þar sem gluggasetning og þakform gera dagsbirtunni kleift að flæða um rýmið.
Gegnheilt parket og Mustang-náttúruflísar á gólfum.
Stigi liggur úr stofu niður á neðri hæð.

Neðri hæð
Rúmgott sjónvarpshol með flísum á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, opnanlegum glugga, upphengdu salerni, flísum á veggjum og gólfi og útgengi út á stóran sólpall með heitum potti.
Fjögur svefnherbergi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi.
Tvö barnaherbergi með gegnheilu parketi. Samkvæmt teikningum á fjórða herbergið að vera baðherbergi en það hefur verið nýtt sem skrifstofa.
Innbyggður og mjög rúmgóður bílskúr, skráður 42 fm, með innangengi. Hluti hans hefur verið nýttur sem þvottahús og geymsla.
Þvottahús með glugga með opnanlegu fagi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flotuðu gólfi og góðri lofthæð.

Stór og afgirtur sólpallur. Gróin garður og falleg og stór tré fyrir framan hús.
Þakrúður og álrammar var endurnýjað 2026 ásamt því að parket á efri hæð var slípað og lakkað.


Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem sjaldan koma eignir í sölu.
Hofstaðaskóli og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ eru í um fimm mínútna göngufæri og stutt er í alla helstu þjónustu.


Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/10/2024125.800.000 kr.133.000.000 kr.183.6 m2724.400 kr.Já
08/03/201041.550.000 kr.40.800.000 kr.183.6 m2222.222 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langafit 18
Skoða eignina Langafit 18
Langafit 18
210 Garðabær
165,4 m2
Einbýlishús
412
513 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Austurkór 87
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Austurkór 87
Austurkór 87
203 Kópavogur
250,8 m2
Einbýlishús
54
789 þ.kr./m2
198.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 35
1.jpg
Skoða eignina Vorbraut 35
Vorbraut 35
210 Garðabær
252,3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut (þakíbúð) 9
Copy of Sæþór_vefur.png
Vorbraut (þakíbúð) 9
210 Garðabær
179,5 m2
Fjölbýlishús
422
1197 þ.kr./m2
214.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin