Fasteignaleitin
Skráð 17. feb. 2026

Kristnibraut 37

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
113.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.700.000 kr.
Fermetraverð
684.581 kr./m2
Fasteignamat
73.200.000 kr.
Brunabótamat
49.500.000 kr.
JR
Jón Rafn Valdimarsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2258156
Landnúmer
187819
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
010303
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
1
Lóð
4.52
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: LAUS STRAX. Björt útsýnisperla með suðursvölum og bílskúr – Frábært útsýni - Frábær kaup. Útleiga á bílskúr gæti t.d. greitt góðan skerf af afborgunum húsnæðisláns.

Sérlega vel skipulögð útsýnisíbúð á þriðju og efstu hæð við Kristnibraut í Grafarholti. Hér fer saman sjarmerandi heimili, glæsilegu útsýni og bílskúr, staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi. Eignin býður upp á frábær tækifæri fyrir nýja eigendur. Samkvæmt fasteignaskrá er íbúðin 93,5 fm með geymslu og bílskúr 20 fm, samtals 113,5 fm að stærð



Þegar komið er inn tekur við flísalögð forstofa með vönduðum fataskápum sem ná upp í loft. Þaðan opnast rýmið inn í hjarta íbúðarinnar; bjarta stofu og eldhús sem mynda eina heild. Birtan flæðir inn um stóra glugga og útgengi er úr stofu út á sólríkar suðursvalir þar sem hægt er að njóta veðurblíðunnar. Eldhúsið er sérstaklega vistlegt með nýlegum flísum á milli efri og neðri skápa og rúmgóðum borðkrók við glugga. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með og auðvelda flutninga.

Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og björt með góðu skápaplássi. Hjónaherbergið og barnaherbergið snúa bæði til norðurs þar sem útsýnið yfir Esjuna og Grafarholtið í átt að Grafarvogi nýtur sín til fulls – fullkomin staðsetning til að vakna við náttúrufegurð. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, búið upphengdu salerni, handklæðaofni og nýlegri innréttingu með baklýsingu á spegli. Þvottahúsið er innan íbúðar, flísalagt og með góðri vinnuaðstöðu.

Eigninni fylgir 20 fm bílskúr með rafmagnshurð, heitu og köldu vatni og lökkuðu gólfi – kjörinn fyrir bílinn eða sem rúmgott rými fyrir áhugamál svo dæmi sé nefnt. Auk þess fylgir sér 11,6 fm sérgeymsla í sameign. Sameignin er snyrtileg og lóðin vel hirt.

Heildarstærð eignar er 113,5 fm samkvæmt Þjóðskrá. Þetta er eign sem býður upp á góð lífsgæði, stutt er í náttúruperlur og alla þjónustu.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 6955520 eða jon@miklaborg.is

www.jonrafn.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/05/202465.950.000 kr.69.900.000 kr.113.5 m2615.859 kr.
22/12/202041.100.000 kr.46.100.000 kr.113.5 m2406.167 kr.
19/12/201322.650.000 kr.2.500.000 kr.224 m211.160 kr.Nei
01/06/201019.700.000 kr.20.700.000 kr.93.5 m2221.390 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mýrarvegur 118 íbúð 201
Mýrarvegur 118 íbúð 201
600 Akureyri
80.3 m2
Fjölbýlishús
312
659 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Ásatún 40
Skoða eignina Ásatún 40
Ásatún 40
600 Akureyri
67.3 m2
Fjölbýlishús
212
854 þ.kr./m2
57.500.000 kr.
Skoða eignina Bólstaðarhlíð 60
Bólstaðarhlíð 60
105 Reykjavík
116 m2
Fjölbýlishús
413
703 þ.kr./m2
81.500.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (110)
Opið hús:12. apríl kl 14:30-15:00
Template (7).jpg
Skoða eignina Laugaborg (110)
Laugaborg (110)
105 Reykjavík
101 m2
Fjölbýlishús
312
988 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin